Skírnir - 01.01.1845, Síða 88
90
mörg ár lijálpað Abd-el-Kaðer um vopn og ab liann
hefði sagt Serkjum að Frakkland væri ofur litil
ey, og að allir Frakkar hefðu farið þaban til ab
berjast við þá; og ef Serkir gjætu drepið alla þá
Frakka er væru í Alsírslandi, hefðu þeir eybt
þessari litlu þjóð, og mættu síðan lifa i nábum;
hefðu hann fengib flesta til að trúa þessu, og á
þann hátt stappað í þá stálinu. Eptir að friður-
inn var gerbur fór prinzinn af Joinville heirn til
Parísborgar, og var Bugeaud hönum samferða,
hafði liaun, meðan hann væri burtu, fengið Lam-
oricier jarlsdæmið í hendur. Öðru hvörju voru
þjóðflokkar Serkja ab gera Frökkum árásir, og
seint í októbermánuði réðust Kabýlarnir á einn
af herforíngjum Frakka, er Comman lieitir, sló þá
í mikinn bardaga, og fellu margir af hvörutveggj-
um, en svó lauk bardagauum að Kabýlar liopuðu
uppí fjöllin. Hafa þeir þar öðruhvörju bólfestu,
og er þar íllt að þeiin að komast, enda eru þeir
og mjög hraustir, og engin þjóð, hvörki Rómverjar,
Vandalar, Arabar ne Tyrkjar, hefur enn gbtað
sigrab þá að fullu. Mun og Frökkum verða það
torsókt. — Frakkar hafa í ár haft vakandi auga
á óeyrðunum áSpáni, þótt þeir ekki hafi algjör-
liga skorist í leikinn. Millum þeirra og Sar-
diniumanna hófust í ár litilfjörligar deilur útúr
verslunarsamningi, er gerður var 2!>augústm. 1842;
og bar það til þess að Frakkar gerðu líkanii samn-
ing við greifadæmið Mónakó, og spilltu þannig
fyrir verslun Sardiniuraanna, er fyrir þá sök eigi
vildu lialda samninginn. Mörg af dagblöðunum
á Frakklandi hafa í ár álasað Frökkum fyrir að