Skírnir - 01.01.1893, Blaðsíða 67
Ítalía.
67
enda mintist keisari á það í ræðu þeirri, sem lianu hélt fyrir brúðhjðn-
unum, og fðr mörgum fögrum orðum um vináttu þá sem væri milli ítala
og Þjóðrerja. Wladimir stórfursti var og Btaddur við silfurbrúðkaupið af
hálfu Rússakeisara og þðtti slíkt furða, því menn héldu að Rússakeisari
mundi ekki líta hýru auga til Ítalíu, fremur en hinna landanna í þrenn-
ingunni.
Páfinn hafði gefið í skyn, að sér væri ekki um að konungbornir menn,
sem hefðu páfatrú, sæktu Umberto konung heim, en þó sendi Austurríkis-
keisari þangað Rainer erkihertoga; þótti hann vera firna djarfur að breyta
á móti vilja páfa. Ekki tók Leó páfi á móti Rainer, og var auðséð að
honum þótti sér misboðið með Rómferð hans. Enn var hertoginn af York,
sonarsonur Yiktoríu drotningar og ríkiserfingi að Englandi við silfur-
brúðkaupið; hefur því ekki vantað stórmenni við hátíð þessa, en hitt er
efamál, hvort Ítalía, sem á i mestu fjárkröggum um þessar mundir, hefir
haft efni á að halda hana.
Um leið og Þýzkalandskeisari sótti Umberto konung heim, hitti hann
Leó páfa, og er sagt að þeir hafi lítið talað um stjórnmál, heldur mest-
megnis um hagsmál verkmanna og annarar alþýðu. Leó páfi tók keis-
ara mætavel og skildu þeir með mestu kærleikum; var tekið til þess að
páfi fylgdi keisara til dyra um fleiri en eitt herbergi, því slíkt er ekki
venja við hirð páfa.
Uppreisn mikil varð á Sikiley um haustið. Eyjarskeggjar þóttust
ekki geta unað við ójöfnuð þann, sem jarðeigendur og yfirvöld á eyjunum
sýndu þeim, tóku því til vopna, rændu þjóðir og brendu bygðir. Um sama
leyti urðu róBtur víðar á Ítalíu. Um haustið kom bankamálið aptur fyrir
á þinginu og sannaðist, að ýmsir stjórnmálamenn, jafnvel ráðgjafar, höfðu
þegið mútur og gert sig seka í ýmsum fjárbrögðnm. Hér við bættist, að
fjárhngur ríkisins var mjög erfiður, og er áköfum herbúningi kent um,
hér eins og annarsstaðar. Landherinn hafði verið aukinn mjög síðan Ítalía
komst í þrenninguna og sjóherinn að sama skapi, enda verða ítalir að
halda geysimikinn herskipaflota, ef vel á að fara í ófriði, þar sem strendur
landsins eru svo afarlangar. ítalir hafa því komið sér upp geysimiklum
brynbörðum seinustu árin. En allur þessi herbúnaður hefir kostað of fjár
og meira en landið gat risið undir.
Öll þessi vandræði urðu til þess að ráðaneyti Giolitti’s varð að víkja
frá völdnm í miðjum nóvember. Konungi veitti mjög erfitt að fá mann
til að skipa nýtt ráðaneyti, því áhorfurnar voru hinar verstu, en loksins
6*