Skírnir - 01.01.1893, Blaðsíða 97
Nokkur mannalát 1893.
97
og líkamleg harmkvæli og náði eér aldrei. Lítið munu íslendingum vera
kunnug rit Maupassant’s, en þð má nefna til „Bel-Ami“ og „Nðtre Coeur“,
og var Maupassant farið að förlast þegar hann samdi þessa seinni sögu.
17. ágúst dó Jean Martin Charcot, franskur maður, einhver hinn
frægasti læknir um þessar mundir. Hann fæddist 29. nóvember 1825 og
var lengi kennari i læknisfræði við háskólann í Parísarborg. Seinna
hluta æfi sinnar var hann læknir við „la Salpetriére", en það er afarstórt
sjúkrahús fyrir fátækar konur. Charcot fékkst alla æfi við taugasjúk-
dóma, og þótti frægastur taugafræðingur um þessar mundir, en lagði
minni stund á að lækna taugasjúkdóma. Uppgötvanir hans eru mjög
margar og mikilsverðar og snerta alla hluti taugakerfisins. Binkum má
nefna rannsóknir hans um taugaveiklun (hýsterí) karla og kvenna og
„hýpnótisme“.
12. september dó Miribel, franskur herforingi, af slysi 62 ára. Hann
var að ríða sér til skemmtunar og var einn á ferð. Svo er að sjá sem
Miribel hafi fengið slag og dottið af baki, en festist í ístöðunum og dró
hesturinn hann langan veg á fleygiferð, svo hann limlestist mjög og dó
sama kvöldið. Miribel þótti bezt að sér í hernaðarfræðum af öllum frakk-
neskum herforingjum, og er svo sagt, að allir hafi verið einhuga um að
fela honuin á hendur yfirforustuna í næsta stríði við Djóðverja. Prakkar
byggja enn til hefnda.
17. október dð Mac Mahon, hertogi af Magenta og marskálkur af
Prakklandi, fæddur 28. nóvember 1808. Hann var framan af mest við
hernað suður í Algior og tók þar þátt í fjölda mörgum orustum. Hann
tók líka þátt í striðinu við Kússa 1855 og ítali 1859. 1864 varð hann
æzti embættismaður í Algier. 1870 var hann kallaður heim til Prakk-
lands. Þar gekk hernaður hans fremur skrykkjðtt, eins og kunnugt er, og
var honum það þó ekki sjálfum að kenna. Loksins varð hann að gefast
upp við Sedan 1. september. Seinna var Mac Mahon yfirforingi yfir her
þeim, sem bældi niður uppreisn skrílsins í Parísarborg. 24. maí 1873
varð hann forseti þjóðveldisins eptir Thiers, en vék frá völdum 30. jan.
1879. Mac Mahon var talinn hinn heiðarlegasti maður og hreystimenni
hið mesta; var ekki að marka þótt honum yrði lítið ágengt í stríðinu við
Prússa, því þar var ólíku saman að jafna, að því er snertir liðfjölda og
útbúning allan. Mac Mahon var grafinn á ríkiskostnað.
18. október dó Charles Gounod, einhver helzti lagsmiður Prakka, f.
Sklrnir 1893.
7