Skírnir - 01.01.1893, Blaðsíða 70
70
England.
stones vörðu það. Umræðunum um „fyrsta leatur" var lokið fjðrum dög-
um eptir að frumvarpið var lagt fram, og var það þá samþykt án þess að
gengið væri til atkvæða.
Um miðjan marzmánuð var Gladstone lasinn af kvefi nokkra daga og
varð því að fresta „öðrum lestri“ málsins fram yfir páska. Loksins var
tekið til ðspiltra málanna aptur 6. apríl og liélt Gladstone þá langa ræðu;
fðr hann mörgum fögrum orðum um frumvarpið og sambandið milli íra
og Englendinga, en mðtstöðumenn hans gáfu því engan gaum og stungu
þegar upp á að fella frumvarpið, en því fór fjarri að það væri gert; hðf-
ust nú allmiklar umræður um málið á þinginu. Úniðnistar hömuðust á mðti
því, einkum Chamberlain, en írar og aðrir stjðrnarsinnar vörðu það.
Loksins var það samþykt í annað skipi 22. apríl með 347 atkvæðum
gegn 304.
Meðan stðð á „lestrum11 frumvarpsins á þinginu var ekki um annað
talað en það, og var tekið mjög misjafnt undir það. Ulsterbúar voru
einna æfastir gegn því. 2. marz héldu þeir fund mikinn í Belfast og
mæltu þar mjög á móti frumvarpinu; var kveðið svo á að lokum, að þeir
skyldu ekki hlýða þinginu i Dublin þðtt það kæmist á og ekki borga
skatta þá, sem þeim hæri að lögum. Fundarmenn hðtuðu jafnvel að verj-
ast með vopnum ef írar fengju stjðrnarbðt sína og kváðust mundu geta
haft 50,000 vopnaðra manna á takteinum. Loksins brendu fundarmenn
allar myndir, sem þeir gátu náð í af Gladstone og Morley.
Svipuð mðtspyrna kom fram á mörgum fundum, sem mðtstöðumenn
stjðrnarinnar héldu; sagði Salisbury lávarður á einum þeirra, að þeir sem
sér vildu fylgja yrðu að leggja svo mikið kapp á sem mögulegt væri, að
frumvarp Gladstone’s yrði ekki samþykt, og var gerður að því gðður rðm-
ur. Sumir fjandmenn frumvarpsins höfðu jafnvel i hötunum, að drepa
Gladstone og sýndi einn þeirra sig í því 26. april, en hann var reyndar
ekki með fullu viti. Eins var grjóti kastað á járnbrautarvagn þar sem
Gladstone var inni, en hann sakaði ekki.
Fylgismenn Gladstone’s héldu líka fjölda af fundum og var frumvarp-
ið lofað þar á hvert reipi, eins og lætur að líkindum.
Nú var tekið til annarar umræðu um frumvarpið, eptir því sem mér
skilst, og gekk hún fremur skrykkjótt, því mðtstöðumenn stjórnarinnar
gerðu alt sem þeir gátu til að draga málið og flækja það. Alls voru 40
greinar í frumvarpinu og voru bornar upp yfir 20 breytingartillögur við
sumar greinarnar. Eins héldu mðtstöðumenn stjórnarinnar geysilangar