Skírnir - 01.01.1898, Page 8
8
Jlagur landsmanna.
Þótt veturinn væri heifrebur og tíð ekki góð, urðu þó skepnuhöld
heldur góð um vorið. Þegar vetraði aftur, varð nokkur skepnudauði af
bráðafári, en þó með minna móti. Bólusetning var enn reind og þó nokkru
víðar en áður. Reindist hún enn góð vörn gegn veikinni, enn þó var s&
gallinn á, að bóluefnið var of sterkt og dó margt af bólusetningunni
sjálfri.
Á búnaðarbáttum manna varð eDgin breiting. Itlur kur hefur veríð
hjá bændum ifir vinnufólksfæð og háu vinnukaupi. Yerslun var ill ifir
höfuð að tala, var nú enn sem fir í vondum árum fast gengið eftir skuld-
um og urðu menn því að fækka mjög fé. Þar við bættist að kornvara
hækkaði mjög i verði, er ófriðurinn hófst, milli Spánar og Bandamanna,
og útlend vara ifir höfuð í háu verði, en innlend vara í Iágu verði.
Kaupfélög hafa átt heldur erfitt uppdráttar og voldur innflutnings-
bann Bngla því. Niir fjármarkaðir hafa ekki enn fengist, en þó hefur
fé verið flutt og fengist vonum fremur firir eftir þeim örðugleikum, sem
á eru. Kaupfélag Þingeiinga hefur gert tilraun að koma íslensku sméri
á utlendan markað. Sendi það smér til Skotlands og fékk um 80 aura
firir pundið að frádregnum kostnaði. Yiðskifti manna á milli hafa verið
erfið sökum þess, hve bankinn hefur verið félítill, enda hefur það og ver-
ið mikill óhagur firir kaupmenn og allan þorra þeirra manna, er ráðist
hafa í einhver firirtæki. Hagur bankans hefur verið sem hér segir: Hann
hefur lánað hérumbíl 400,000 kr. þetta ár og viðlíka mikið hefur verið
borgað. En mest af því hefur verið borgað á þann h&tt, að lán hefur
verið borgað með níu láni.
Það hefur þvl í raun og veru runnið lítið inn af peningum. Yarð
bankinn því á miðju ári að takmarka Iánveitingar að miklum mun og
hætti að mestu að veita ábirgðarlán. — Vígsla keifti bankinn firir rúmar
600000 kr. og ávísanir firir rúmar 80000 kr. Inn á hlaupareikning var
lagt rúm 700000 kr. og útborgað aftur tæp 700000 kr. Innstæða bank-
ans var tæp 200000 kr. í árslok. Sparisjóðsinnlög voru eigi full 800000
kr., en úttektín var rúmlega 130000 kr. meiri. Öll innstæðan var í árs-
birjun ifir 1100000 kr., en í árslok var hún eigi nema kringum 1000000
kr. Bankinn var alt árið í skuld við „Landmandsbanken", frá 100000—
200000 kr. Skuld þessi var um áramót sým 100000 kr.
Af óhagstæðri verslun og féleisi bankans leiddi svo mikla peninga-
þröng að til vandræða horfði. Var og efnahagurinn alment erfiður, þótt