Skírnir - 01.01.1898, Page 18
18
Frá Vestur-íslendingum.
bigðum þrr vostra og verðið á afurðum af jörðum þeirra fremur gott.
Fiski hefur og verið dágott hjá þeim, sem þá atvinnu reka, og fáir verka-
menn hafa kvartað um viunuskort og margir haft góða atvinnu alt árið.
Af auglísingum og öðrum smágreinum i veBturíslensku blöðunum má
marka, að margir menn eru þar framtakssarair og landar vorir reka mjög
margskonar atvinnu. Meðal annars má geta þess, að ekki allfáir íslend-
ingar hafa farið til gulllandsins til að grafa gull.
Þjöðérni sitt vilja þeir firir hvern mun varðveita og hafa þeir unnið að því
þetta ár eins og að undanförnu. Hafa þeir meðal annars gert það með því, að
halda íslenska þjöðhátíð, semþeir kalla „íslendingadag11. Út afþví hátiðahaldi
reis nokkur misklíð og rammar blaðadeilur. Vildu sumir halda hátíðina 17.
júní, en aðrir 2. ágöst. í Selkirk, Laufásbigð, Brandon, á vesturströnd
Manitobavatns, í Áltavatnsnílendu og við íslendingafljót var hún haldin
17. júní, en 2. ágúst var hún haldin í Spanish Fork, Utah, AlbertBní-
lendunni og Breiðuvik í Nia-íslaudi og Winnipeg.
Mentamál Vestur-íslendinga eru einn sterkasti þátturinn í viðlcitni
þeirra að halda þjóðerni sínu. Firir því leggja þeir mikinn hug á þau.
En þau eru svo samtvinnuð kirkjumálum hjá þeim, að það verður eigi að-
greint. Þíðingarmosta mentamálið, sem þeir hafa unnið að þetta árið, er
skólamálið. Þess var getið í þessu riti í firra, að þeir vildn koma á fót
lærðum skóla hjá sér. Hafði þá komið til tals að hann stæði í Park
River. En meiri hluti nefndar þeirrar, sem sett var i málið, vildi heldur
að hann stæði í Winnípeg. Hið evang. lútorska kirkjufélag íslendinga í
Vesturheimi hefur gengist flrir málinu og sett áður talda nefnd í það. Á
ársfundi félagsins (24.—29. júní) skírði nefndin frá þvi, að hún hefði
eigi enn getað ákveðið stað flrir skólann, og lagði til, að kirkjuþingið á-
kvæði, að hann skildi standa í Winnipeg, og var það samþikt. Eftir
endurskoðuðum reikningi frá nefndinni var skólasjóðurinn þá orðiun
doll. 5346,68.
Auk margra kvæða í blöðunum eftir írasa hefur komið út ein ljóða-
bók eftir Vestur-íslending, er heitir Magnús J. Bjarnason. Tvö ní blöð
hafa bæst við þar vestra, mánaðarblaðið „Freia“, ritstjóri frú M. J,
Bonediktsson, og „Lísing“, sem þó er eiginlega áframhald af Dagsbrún.
í maímánaðarlok útskrifaðist Magnús B. Haldórsson af læknaskólan-
um í Winnipeg. Hann er sonur Björns Haldórssonar frá Úlfsstöðum í
Loðmundarfirði.