Skírnir - 01.01.1898, Síða 31
Styrjöld Bandaríkja yið Spán.
31
Nú er það af uppreisninni 4 Cúba að segja, að Weyler hafði rekið
alla búondur, þá er friðsamir vðru og engan þátt tðku í uppreieninni,
burt af búum sínum og inn til bæja; girtu þar um þá torfgarði og strengdu
á gaddavír, skipuðu bvo hervörðum umbverfis þá, og þarna mátti fðlkið
lifa og deyja undir beru lofti. Báru Spánvorjar það fyrir, að uppreisnar-
menn fengju vistir bjá þeim, ef þeir sætu að búum. Engum matvæluro
var þeim fyrir séð, og af 400,000 manns, sem þannig vóru kvíaðir á
vcsturhlut eyjarinnar, höfðu um nýjár 1898 200,000 fallið úr bungri og
vesöld, en hitt alt að fram komið og mörgu engin lífs von1. Bandaþingið
veitti stórfé (doll. 10,000,000?) til að kaupa fyrir vistir og færafðlki þessu.
Það heíir að líkindum verið til að líta eftir útbýting þessarar hjálpar,
eða af því tilefni, að Bandaríkinsendueitt af inum stærri herskipum sínum,
spánnýtt skip, Maine að nafni, til Havanna. En í orði kveðnu var svo
látið heita, að skipið kæmi vinsamlega kynnisferð, en Spánverjar skyldu
aftur senda berekip sitt Viscaya í kynnisferð til Brooklyn (N. Y.).
16. Febrúar varð það tíðinda að kveldi dags, að vígskipið Maine, sem
lá á höfninni í Havanna, sprakk í loft upp, og týndu þar lífi 270 menn.
Dað sannaðÍBt við skoðun á eftir, að skipið hafði verið sprengt upp með
sprengivél á mararbotni, en spánska stjðrnin hafði lagt margar slíkar
vélar í botninn á höfninni, og mátti kveikja í þeim með rafmagnsþræði
frá landi. Engum kom til hugar að eigna stjórninni illvirki þetta, en
hins vegar auðsætt, að það mundi unnið af Bpánskum manni (foringja),
er aðgang hefði haft að sprengistöðinni í landi. B,étt áður hafði það til
borið, að sendiherra SpánarBtjórnar i Washington hafði ritað bréf kunningja
sínum á Cúba, og í því farið háðslegum orðum um McKinley, hvað hann
væri lítilsilgdur maður o. s. frv., og jafnframt látið í ljðs það álit sitt,
að stjðrnarbðt sú, sem Cúba væri boðin, mundi að eins vera málamyndar-
leikur til að ginna Bandaríkja-stjórn. Bréf þetta komst ekki til ekila í
hendur áritnings, heldur gat einhver uppreisnarmaður stolið því, og var
ekki seinn á sér að láta birta það í blöðunum i New York. — Banda-
rikjastjðrn heimtaði þegar i stað af Spánarstjórn að hún kveddi sendi-
herrann (de Lome) heim, og var það tafarlaust gert. En þetta bréf efldi
mikið illvilja til Spáns í Baudaríkjum; og þegar svo Maine-sprengingin
bættist við, þá fóru þeir að fá betri byr, sem vildu hefja ðfrið við Spán;
*) Árið 1897 var fullyrt að alls liefði fallið úr liungri og harörétti 600,000
manns á Cúba.