Skírnir - 01.01.1898, Side 48
48
Krít.
framt um leið, að hann hefði áeett sér að eiga engan hlut í þeBsu máli
á hyoruga hlið.
Nú fór soldáni að fallast hugur. 5. Okt. létu veldin sendiherra sína
heimta af soldáni, að hann skyldi innan 14 daga byrja að flytja burt her
sinn og hafa lokið því á hálfum mánuði.
í Október-lok létu þessi sömu veldi Iandstjóra soldáns á Krít vita,
að nú færu þau að taka sér í hendur öll embætti og stjórn á eynni og
reka burt alla tyrkneska embættismenn, og frá því að morgni 4. Nóvem-
bers sé þeir allir frá völdum settir. Þetta varð framgang að hafa og 10
dögum síðar var hver einasti tyrkneskur hermaður burt af Krit. Æðsti
foringi Tyrkjaliðs, Cbakír passja, fór um borð aðfaranótt 14. Nóv. á skip
það á Caneahöfn, sem átti að flytja hann og aðra siðustu Tyrki á brott.
En akkerum neitaði hann að létta eða halda burt fyrri en hann fengi til
þess skipun soldáns. Þá bauð franski aðmírállinn einu tundurskipi í flota
sínum að greiða atlögu að Tyrkja-skipinu. Það hreif; skipið létti akker-
um í skyndi og eimdi á brott ið hraðasta.
12. Desbr. gáfu veldin, sem höfðu rekið Tyrki burtafKrít, auglýsing
út til alþýðu á eynni um, að þau hefðu skipað þar nýja stjórn; Bkyldi þar
vera landstjóri (Righ Commissioner) af veldanna hendi. Þetta líkaði eyjar-
mönnum vel, og varð mikill fagnaður er það varð kunnugt, að veldin höfðu
kvatt til landstjóra Georg, yngra son Georgs Grikkja-konungs, og fengið
s imþykki hans og föður hans til þessa ráðs. Kom Georg prins til Krítar
21. Desbr. og var forkunnarlega vel fagnað. Talaði hann til alþýðu og
hét að stjórna landinu vel og réttvíslega.
Þessi málalok á Krít líka Grikkjum vel, því að þótt svo Bé látið
heita enn í orði kveðnu, sem eyjan liggi undir Tyrkjakrúnu, þá hefir sol-
dán engin ráð yfir henni, enda blandast engum hugur um, að verði nú
Grikkir „góð börn“ um sinn, þá muni eyjan á þeirra vald hverfa áður en
mjög mörg ár líða. Sannast hér það, er ég sagði í fyrra, að styrjaldir
verða ekki Tyrkjum til landvinnings úr þessu; hvort sem þeir bíða sigur
eða ósigur, sjá stórveldin svo um, að jafnan saxist nokkuö á „limina hans
Björns míns“ við hverja styrjöld.
Rúsland. — Prá afskiftum Rúsa af Krítar-málinu hefir nú verið sagt
hér á undan, og sömuleiðis hefir þegar hér að framan verið sagt frá við-
skiftum Rúsa og Sínverja og framkomu þeirra þar austur frá.
Hér skal nú minnast á þann merkis-viðburð ársins, sem hugsanlegt er