Skírnir - 01.01.1899, Blaðsíða 58
58
Bfla-þáttur
í Desembermánuði veitti Bretum þunglega í viðskiftum við Búa.
Gatacre hershöfðingi Breta stýrði miklu liði i norðurhluta Höfða-lýðlendn,
og skyldi verja hana fyrir ðraníubúum. Hann réð á Bfla nálægt Storm-
berg drottinsdaginn 10. Desember, en beið gersamlegan ósigur, og átti
hann og lið hans fðtum fjör nð launa, það er undan komst; féll þar af
honum margt manna, en fleiri særðust; en hátt á 6. hundrað tðku Búar
til fanga. Tveim dögum síðar réð Methuen hershöfðingi, er stýrði megin-
her Breta vestra, á Transvaalbúa við Magesfontein, en þeim stýrði Cronje
hershöfðingi. Af Hálondingum i liði Breta féllu þann dag og særðust 650
manns og 60 foringjar að auki, en alls féllu eða særðust í orustunni yfir
1000 mannm af Breta liði, og hiðu þeir gersamlegan ðsigur og urðu að
halda nndan til Modder River.
Þá er að víkja til styrjaldarinnar austur frá í Natal. 14. Desbr. flaug
sú fregn um alt England, og olli miklum fagnaðarlátum, að nú hefði Buller
hershöfðingja tekist að leysa Ladysmith úrlæðingi; þetta var á Fimtudag.
En á Laugardagsmorguninn kom in sanna fregn, og hfln var sú, að Buller
herhöfðingi hafði ráðist á Búa lið í grend við Colenso, en þeir hrakið hann
af höndum sér, og lótu Bretar þar á 2. þúsund manna, er ýmist féllu eða
urðu sárir eða teknir til fanga. Þá féll meðal annara Roberts staðgengill,
sonur Roberts lávarðar. Búar tóku þar af Bretum 11 fallbyssur og meira
herfang.
Svona stðð í árslokin.
Bretland ið mikla. Eins og getið var um 5 fyrra var „frjálslyndi“
flokkurinn þar foringjalaus við áramótin, er Harcourt hafði af sér sagt
flokksforustu. Þá er parlímentið kom saman eftir nýárið, var Sir Camp-
bell Bannermann kosinn foringi, og er hann síðan talinn fyrir því liði.
En mjög hefir flokkurinn verið dreifður og samtakalaus, og fylgislítill á
þingi. Ófiiðurinn við Búa drð stjðrnfylgismenn fastara saman, einkum
í byrjun, en frjálslyndi flokkurinn hafði ekki í fullu tré með að rísa þar
öndverður gegn. Ro.seberry Iávarður veitti enda stjðrninni fult fylgi, og
Bannermann virtist æði hálfvolgur. John Morley er Bá af forkðlfum á
þingi, er einurðarbezt hefir andvígur gerst ófriðnum, og svo Harcourt
gamli.
Bretadrottning hafði gert Kitchener hershöfðingja að lávarði af
Khartoum fyrir sigur hans yfir mahdíanum og það er hann lagði Súdan