Skírnir - 01.01.1905, Síða 17
Heiœavistarskólar.
17
auðvitað er það ekki á heimavistarskólum, og í raun og
veru ncyðarúrræði, þó surnar stórþjóðir, t. d. Þjóðverjar,
láti sér lynda. — Sumstaðar hér á landi hafa kennarar
enn meira vandaverk að inna af hendi en hér er ætlast
til. Síðastliðinn vetur hafði einn kennari 43 börn, 7—14
ára að aldri, til kenslu saman á einum skóla, og þegar
börnin, eins og þar var, koma á skólann á mjög mis-
jöfnum aldri og misjafnlega undirbúin, þá er auðsætt að
kennari á heimavistarskóla, er heíir samtímis 40 börn, 2
ársdeildir, á mikiu betri aðstöðu að því er kensluna snertir.
Kenslunni yrði nú hagað svo, að börnin væru öll
saman í kenslustofunni, en í 2 deildum. Lætur kennarinn
þá aðra þeirra iðka skrift, stílagerð, teiknun eða skriflegan
reikning, eða læra eitthvað sem hann heflr sett henni
fyrir, og heflr aðeins gát á hvernig gengur og hjálpar til
þar sem þarf í svipinn. Hinni deildinni kennir hann svo
munnlega. Fengi hvor deild hálfrar stundar munnlega
fræðslu i senn. Ef til vill óttast menn að hvor deildin
trufli aðra, en það þarf ekki að verða, að neinu ráði.
Börnin venjast fljótt á að láta ekki truflast af því sem
fram fer í kring um þau, og er það góður skóli fyrir at-
hyglina, enda tíðkast þessi kensluaðferð mjög víða, erlendis.
I sumum stundum gætu öll börnin orðið samferða, t. d. i
söng, eða þegar önnur deildin er að lesa upp það sem hin
er að byrja á. Erfiðast yrði fvrir kennarann að leiðrétta
hinar skriflegu úrlausnir barnanna, en stundum gæti hann
látið börnin leiðrétta hvort hjá öðru. Kenslustundir í bók-
legum greinum ættu að vera 4—5 á dag, undirbúnings-
stundir 2. A skólanum eiga að vera saman piltar og
stúlkur, og skal eg ekki færa rök fyrir því, af því að
varla mun nokkur hér á landi vera hræddur við þá til-
högun.
Þessir skólar eiga nú ekki að vera bókfræðslu skólar
eingöngu. Á engu ríður oss fremur en því, að æskulýðnum
sé innrættur réttur skilningur á líkamlegri vinnu, ást á
henni og virðing fyrir henni, og séu þau jafnframt látin
iðka hreinlæti og holla og reglubundna lifnaðarhætti. Börnin
2