Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1905, Side 19

Skírnir - 01.01.1905, Side 19
Heimavistarskúlar. 1» Kennarimi og' ráðskonan skit'tusf á með umsjónina á dag'inn, og' auk þess a*ttu börnin sjálf, þau er kennarinn setti til þess tii skiftis, að hafa et'tirlit hvert með sínum ttokUi er stört' hefði á hendi. Eins ætti að velja umsjónarmann í hvoru svefnlofti, en auk þess hefði ráðskonan eftirlit með öðru svefnloftinu um nætur, en vinnukonan með hinu. Skóláhúsið. Herra héraðslæknir Guðm. Björnsson hefir skrifað grein fyrir »Skírni« um það, hvernig hús þurfi að vera til skólahalds með þeim h;eti i sem hér er farið frarn á og gjört nokkrar áætlanir um kostnaðinn. Skal eg því aðeins vísa til hennar. Kostnaður Guðm. Björnsson gerir ráð f'yrir að heima- rið rekstur vistarskólahús í sveit fvrir 40 börn tnundi skólans. kosta um 18000 kr. Þetta verður auðvitað ekki sagt með neinni vissu, og ættu sveita- menn að gjöra áætlanir um það sem víðast á landinu og birta niðurstöður síuar í blöðunum. En setjum svo að húsið kostaði 18000 kr. Sanngjarnt væri að landssjóður gæfi helming verðsins í eitt skifti fyrir öll. Ætla eg að gera ráð fyrir því, að landssjóður gerði þetta, og tek því ekki þá fjárhæð til greina við áætlanir þær sem á eftir fara, því þær eru ekki miðaðar við landið í heild sinni, heldur hvern skóla, þegar hann er kominn upp. Geri eg því ráð fyrir 5 °/o vöxtum af 9000 kr. (þeim helming hús- verðsins, er landssjóður borgar ekki) í árlegum útgjöldum skólans; það verða 450 kr. og auk þess 2 % fyrir við- haldi og vátryggingu skólahússins alls, eða 360 kr. Arleg gjöld af húsinu eru þá 810 kr. Gerum nu ráð fyrir að skóli sé haldinn 8 mánuði, eða 240 daga. Um kostnað við eldsneyti og ljósmeti er ómögulegt að gjöra áreiðan- lega áætlun; hann fer eftir gæðum skólahússins og hitun- aráhöldum þess, veðráttuni þar sem skólinn stendur, hve auðvelt er með aðflutninga, mótak gott osfrv. Við holds- veikraspítalann eru áætlaðar 3510 kr. til eldsneytis og- ljósmetis. Hann kostaði 130000 kr. eða meir en sjöfalt 2*

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.