Skírnir - 01.01.1905, Page 28
28
Um heimavistarskólahús handa börnum.
störf sír, matreiðslu og þjónustu. Honum verður að ætla
væna skrifstofu — þar má geyma bækur og kensluáhöld —,
auk þess dagstofu og svefnstofu, eldhús og vinnnkonu-
herbergi og geymslurúm.
Salerni barnanna verða að vera innanhúss, til þess
að börnin þurfl ekki að fara út í vondum veðrum til þarf-
inda sinna. Til eru ódýr salerni þannig gerð, að þau má
vel hafa inni, i klefa við útvegg, t. d. í kjallara eða for-
stofu, án þess að nokkur óþrifnaður (óþefur) sé að.
Loftrœsting. Þó að skólastofur og önnur herbergi séu
svo stór, sem hér hefir verið til tekið,
verður andrúmsloítið í þeim á stuttri stundu mjög slæmt,
ef ekki er séð fyrir stöðugri loftrás. Loftrásin þarf að
vera það ör, að loftið nýist upp að t'ullu tvisvar sinnum
eða þrisvar á klukkustund. Hér er ekki rúm til að skýra
frá því, hvernig slikri loftrás er hagað. Hún er ekki
kostnaðarsöm; hún skapar ekki súg, ef rétt er um búið;
hún gerir stofurnar ekki kaldar; hún eyðir ekki miklu
eldsneyti á vetrum; ofnhitinn fer minstur til þess að hita
andrúmsloftið í stofum, hann fer mestur í veggina og út
úr þeim. Þáð fer verst með eldsneytið, ef veggirnir halda
illa hita (eru »kaldir«).
Upphitun. I sveitum verðu að hagnýta sér mó til
eldsneytis. Móofnar eru litlu dýrari en
kolaofnar og liita ágætlega. I svo stórum skóla, sem hér
er um að ræða, væri þó lang-hagkvæmast að hafa eina
eldstó í kjallara til að hita alt húsið; þá er þar settur ofn
af sérstakri gerð inn i steinklefa; hreinu, köldu lofti er
veitt inn í klefann að utan, ofninn sogar það inn og hann
hitar það í klefanum; úr klefanum er heita loftinu opnuð
rás gegn um pípur (úr tré og blikki) upp í allar stofurnar.
Þessi umbúnaður - - miðstöðvarhitun með heitu lofti — er
litlu dýrari en vandaðir stofuofnar, en miklu hagkvæmari
og á einkar-vel við í meðalstórum húsum; hún tíðkast
mjög i öðrum löndum; hér á landi kann ekki, mér vitan-