Skírnir - 01.01.1905, Page 74
I
Utlendar fréttir.
Svo er til ætlast, aðSkírnir flytji framvegis, eins og undanfar-
andi, í hverju hefti stutt yfirlit yfir viðburðasögu nútímans Hér
verður þá byrjað þar sem fréttasögunni lauk í síðasta árg., en það
var í júní f. á.
Kússar og Japansmenn. Þar lauk frásögninni síðast að
Rússar fórn halloka bæði á sjó og landi. Kúropatkin hershöfðingi
hafði dregið landher Rússa saman við Múkden, en haldið honum
þó suður aftur og suðurfyrir Liao yang, en þar áttu Rússar ram-
gjörðar vígstöðvar. Landher Japana í Mansjúríu var þá þrískiftur.
Nyrzt sótti fram Kúroki hershöfðingi, og var þá við Feng-hjú-
tsjang, hér um bil miðja vega milli vígstöðvanna við Yalú-fljót og
Liao yaug. Við Sin-yen, nokkru sunnar og vestar, var Nodzú
hershöfðingi með aðra aðalkvísl hersins, en Okú hershöfðingi með
hina þriðju við Port Arthúr. Rússar sóttu nú suður eftir og var
ætlun þeirra að leysa Port Arthúr úr umsátinni. Her Japana
mætti þeim skamt fyrir sunnan járnbrautarbæinn Kai-Tsjá, norðar-
lega á nesi því, er liggur austanmegin Liao-tong-flóa. Þar stóð mik-
il orusta frá 22.—28. jútn' og lyktaði henni svo, að Rússar hrukku
fyrir og norður á bóginn aftur. Um sama leyti, síðustu dagana í
júní, sótti norðurher Japana fram gegn Liaó-yang. Þar var vfir
Mótíen-fjallgarð að sækja. Hann er talinn ófær með herlið nema
eftir skörðum nokkrum, en skörðin höfðu Rússar víggirt og skipað
þar herliði til varnar. Það þóttu mikil tíðindi er Japanir hröktu
Rússa úr skörðum þessum og brutust vestur yfir fjallgarðinn. Það
var síðast í júní.
Um þetta leyti byrjar regntíminn þar eystra og stendur yfir
tiær tvo mánuði. Verður þá landið alt mjög ilt umferðar og ó-
fært herliði. Þegar regntímanum lykur, taka við hitar miklir, og
þornar þá landið aftur á fáum dögum. Rigningarnar töfðu nú