Skírnir - 01.01.1905, Síða 89
Kitdómai'.
89'
hlítar hinn ágæta skáldskap Einars Benediktssonar þar seni ekkert
s/nishorn er af honum í bókinni og vonum vér að bætt verði úr
þeirri vöntun í næstu útgáfu. Stgr. Th.
* * *
Island am Beginn des 20. iahrhunderts. Von Valtýr Guðmundsson. Aus
dem Ddnischen von Richard Palleske. Kattowitz 1904.
Bók þessi er þýðing á riti dr. Y. G.: Islarids Kultur ved
Aarhundredskiftet 1 900, sem kom út 1902 og gat sór þá al-
mannalof. Prófessor Þorv. Thóroddsen hefir ritað inngang að bók-
inni um náttúru Islands, en dr. V. G. hina kat'lana: Um þjóð-
ina og daglegt líf hennar; um stjórnarfar og embætta-
skipun; um mentun þjóðarinnar; um bókmentir og listir;.
um fjárhag og atvinnuvegi; um heilbrigðismál og mann-
úðarmál. Er hér mikiS efni saman komið; en þótt efnið sé mikið
og bókin ekki löng, þá er húu skemtileg aflestrar, því framsetn-
ingin er ljós og lipur, bókin er með öðrum orðum vel rituð. Þessi
útgáfa er enn betri en sú hin danska, vegna þess að hún styðst í
sumum atriðom við n/rri heimildir en hin, t. d. síðasta manntal,
1901. Hún sk/rir og frá stjórnarskipun vorri eins og hún nú er,
eftir að breytingin varð.
Aftan við bókina eru nokkur s/nishorn íslenzkra bókmeuta í
góðum þ/ðingum eftir Baumgartuer, M. Lehmann-Filhés, Poestion,
Sehweitzer, Kiichler: kvæði eftir 11 skáld og kaflar úr »Manni og
konu«, »Pilt og stúlku« og »Sigurði formanui«. Loks eru bend-
iugingar til Islandsfara og skrá yfir þyzkar bækur og greinar um
Island í seinni tíð, hvorttveggja eftir þyðandann. Þ/ðingin virðist
einkar vönduð og ytri frágangur ágætur. I bókinni eru 108 pr/ð-
isgóðar myndir, og framan við bókina er ljómatidi htmynd af norð-
urljósum að sk/jabaki, eftir H. Moltke.
Eflaust verður bókin oss til mikils gagus meðal þvzku læsra
þjóða. G. F.
* * *
Fiskeriunders<agelser ved Island og Færeerne i Sommeren 1903 af Dr.
Johs. Schmidt. Khavn 1904. [C. A. Reitzel].
Þessi mjög fróðlega o_' vel ritaða bók er 148 bls. að stærð í
stóru 8 blaða broti með 21 inynd og 10 kortum aftan við bókina;.
1/sir hún nákvæmlega sævar- og fiskirannsóknum þeim, sem fram-
kvæmdar voru á gufuskipinu >,Thor« hér við land og Færeyjar
sumarið 1903.