Skírnir - 01.04.1909, Blaðsíða 63
Mærin frá GrÍéans.
159'
Það er sagt, að Jeanne hafl þegar eftir krýninguna
beðið konung um heimfararléyfi, með því að nii hefði hún
lokið erindi sínu, að leysa úr umsát Orleans og láta krýna
konung. En Karl og menn hans höfðu haft miklu meira
gagn af henni en svo, að þeir vildu missa hana, áður en
Englendingar væru með öllu reknir úr landi. Sögur um
afreks- og kraftaverk hennar flugu út um öll lönd, ýktar
og úr lagi færðar, eins og lög gera ráð fyrir. Hún hafði
náð tökum á hugum allra manna á Frakklandi, jafnvel
óvina sinna; þeir óttuðust hana eins mikið og hinir dáð-
ust að henni. Hingað til hafði alt gengið að óskum; með
óbilandi trú á köllun sinni hafði hún fengið framgengt
öllu því, sem hún vildi
Daglega og oft á dag hafði hún átt tal við engla og
dýrlinga guðs, og þeir höfðu birzt henni í dýrðarljóma.
Hingað til hafði hún verið kát og örugg eins og saklaust
barn, vís þess, að vinir sínir á himnum mundu veita sér
alt, sem hún bæði um. En alt i einu breyttist þetta.
Þegar hún hafði afrekað það, sem hún hafði fengið skip-
un um frá himnum, var eins og hún hefði mist trúna á
sjálfa sig. Hún hélt reyndar áfram að segja, að hún
hræddist ekkert, en bætti samt við: nema svik. Hing-
að til hafði hún hrósað sér at' því, að hafa aldrei notað
sverð sitt, af því að hún vildi ekki mann vega, og að sér
þætti þúsund sinnum vænna um fánamerkið sitt. Nú fór
hún alt í einu að hugsa um, að sverðið væri gott og hægt
að verja sig með því. »Raddirnar« heyrði hún nú sjaldan
og henni rann í grun, að ekki mundi hún verða langlíf.
Hún hafði á orði, að bezt væri að reyna að hafa sem mest not
af sér, því að varla mundi hún endast nema árið; og sú varð
raunin á. Alt haustið og allan veturinn var hún eins og
áður fremst í bardögunum gegn Englendingum. En 23. d.
maímán. 1430 var hún tekin höndum í bardaganum við
Compiégne, og er sagt, að bæði Englendingar og Búrgúndar
hafl furðað sig á því að sjá, að galdrakonan, sem þeir
óttuðust svo mikið, var ung og frið stúlka. Búrgúndar
tóku hana höndum. En svo var Englendingum ant um.