Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 1

Skírnir - 01.08.1909, Page 1
Prestarnir og jatningarritin. Að stofninum til inngangsorð til umræðu, flutt á prestastefnunni á Þingvelli 1909. Eftir Jón Helgason lektor. Spurningin um afstöðu prestanna til játningarrita Skirkjunnar, eða spurningin um kenningarfrelsi presta, er vafalaust ein af þeim spurningum, sem oftast hafa á góma horið og ekki hafa minstum ágreiningi valdið innan vé- 'banda evangelisku kirkjunnar á síðari tímum. Þetta stendur upphaflega i mjög eðlilegu sambandi við sívaxandi kröfur manna um frelsi einstakingsins á öll- um svæðum mannlífsins, kröfur, sem yfirhöfuð að tala ■einkenna 19. öldina alla og 20. öldin hefir tekið í arf frá henni. Þessar frelsiskröfur eru aftur mjög svo eðlilegur ávöxtur vaxandi skilnings manna á persónulegu mæti einstaklingsins. Að sama skapi sem mönnum hefir auk- ist skilningur á mæti mannlegs persónuleika svo sem frjálsrar veru með fullri ábyrgð á öllum sínum gjörðum, hefir mönnum einnig vaxið lifandi óbeit á öllum böndum, ■er virzt gætu hefta þróun persónuleikans og gjöra honum erfitt fyrir að ná ákvörðun sinni sem frjáls maður. Eldri tímum var alls ekki ljóst gildi hins mannlega persónuleika sem frjálsrar veru; fyrir því gátu menn þá horft með jafnaðargeði á ýmislegt það, sem vorum tímum hrýs hugur við sem beinlinis glæpsamlegu, og ekki að •eins sætt sig við það, heldur og varið það. Og svo íhalds- :samur er mannsandinn enn í dag, að fjölda annars góðra

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.