Skírnir - 01.08.1909, Blaðsíða 26
'218
Prestarnir og játningarritin.
Eða hver vill nú á dögum undirskrifa fyrirdæmingardóm
9. gr. yfir Endurskírendum og öðrum, sem halda því fram,
að börn geti orðið hólpin án skírnar, og styðja með því
að þeirri lítt kristilegu skoðun, að börnin, sem óskírð
•deyja, glatist? Jafnvel hinn mikli trúfræðingur 17. aldar-
innar Jóh. Gerhard gat ekki fylgt játningunni hér fyrir-
varalaust og minti á orð Agústíns, að það væri »ekki
vöntun sakramentanna heldur fyrirlitning fyrir þeim, sem
leiddi dóm yfir manninn«. Eg vil ennfremur minna á 11.
gr. um skriftirnar, þar sem kent er að halda skuli í
söfnuðunum heimullegri aflausn; eg veit ekki betur en að
þessi grein sé gjörsamlega fallin úr gildi hvarvetna í
hinni evang.lútersku kirkju. Eg vil einnig nefna 2. gr.
þar sem kent er að upprunaspillingin eða erfðasyndin
•dæmi seka og steypi í eilífa glötun þeim, sem ekki endur-
íæðist fyrir skírn og heilagan anda. Og loks mætti eg
minna á 17. gr. og það sem þar er kent um eilífa útskúf-
un og fyrirdæmingardóminn, sem þar er kveðinn upp yfir
þeim sem haldi fram þúsundáraríkis-kenningunni.
Eg veit það vel, að alt þetta þótti »góð ]atína« ásín-
um tíma og hneykslaði fáa menn, ef nokKurir hafa verið,
slíkur sem hugsunarháttur manna var. En skilningur
manna á guðs orði hefir breyzt svo mjög á þeim 400
árum, sem liðin eru síðan ^Lúter hóf siðbót sína, að það
verður að teljast býsna viðurhlutamikið að skuldbinda
kennimenn vorra tíma við jafn vafasöm kenningaratriði
-og þessi.
Loks ber að minnast á fræði Lúters hin minni. Vafa-
laust voru þau ágætt rit á sínum tíma; en mundi nokkur
af alvöru vilja halda því fram, að það rit samsvari kröf-
um vorra tíma eða innihaldi svo fullnægjandi útskýringu
þeirra hluta sem skyldi, er þar er verið að útskýra? Eg
vil benda á útlistunina, sem þar er gefin á sakramentun-
um báðum — hverju eru menn bættari? Skírnin er látin
tákna, »að hinn gamli Adam í oss eigi daglega að drekkj-
a.st og deyja-----og síðan daglega fram að koma og upp
aftur að rísa nýr maður« — útskýring, sem ekki stendur í