Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.08.1909, Blaðsíða 2

Skírnir - 01.08.1909, Blaðsíða 2
194 Prestarnir og játningarritin. og göfuglyndra manna veitir afarerfitt að átta sig á þess- um frelsiskröfum einstaklingnum til handa, sem uppi eru á vorum tímum, eða að skilja það, að einstaklingurinn geti þróast andlega nema í fullu frelsi. En að baki kröfunum um kenningarfrelsi presta stend- ur líka önnur mikilsverð staðreynd, er gjörir þessar kröf- ur afareðlilegar og því sem næst sjálfsagðar. Það er vax- andi þekking manna á uppruna, eðli og markmiði játn- ingarrita kirkjunnar, sem prestarnir eru heitbundnir við í kenningu sinni, og tilfinningin fyrir því tilfinnanlega mikla djúpi, sem staðfest er milli þess skilnings á guðs orði í ritningunni, sem þar er haldið fram eða liggur til grundvallar útlistunum þeirra, og skilnings kirkjunnar manna á nálægum tíma. Játningarritin eru arfur, sem kristni vorra tíma hefir fengið frá löngu liðnum tímum, þau erutil orðin undir kringumstæðum,sem sérstaklega einkendu þá tíma, með hliðsjón á hreyfingum, sem þá voru uppi, og umfram alt mótuð af hugsunarhætti þeirra tíma og þeini skilningi á kristindóminum, sem þá var álitinn réttur. En tímamir hafa breyzt og með þeim einnig hugsunar- hátturinn. Mannsandinn hefir aldrei staðið í stað, heldur sífelt haldið áfram rannsóknarstarfi sínu og sifelt verið að vaxa að vizku og þroska og skilningi á þessu ljúfasta viðfangsefni hugsandi mannsandans. Margt af því, sem játningarritin innihalda og var álitið rétt og sannleikan- um samkvæmt á þeim tímum, er nú álitið sumpart vafa- samt og sumpart rangt, og skilningur manna á kristin- dóminum er í ýmsum greinum orðinn allur annar en þá var. Guðfræði síðari tíma hefir í ljós leitt ýmsar staðhafnir, sem eldri tíma ekki óraði fyrir og þeir ekki heldur gátu þekt, svo skamt sem þeir voru á veg komnir í þekkingu sinni, og brugðið nýju ljósi upp yfir fjölda gamalla sanninda, sem nú horfa alt öðru visi við oss en áður gjörðu. En þrátt fyrir þetta hafa menn til skamms tima átt afarörð- ugt með að átta sig á því, að nokkura nauðsyn bæri til að losa um játningarhaftið á kennimönnum kirkjunnar, og álitið kröfurnar um kenningarfrelsi presta, ef ekki bein-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.