Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 6

Skírnir - 01.08.1909, Page 6
198 Prestarnir og játningarritin. Grundtvígssinna meðal prestanna — á stjórnina, að breyta prestaheitinu á þessa leið: »Ég, sem veit mig í samhljóð- an við hina evang.-lút.-kirkju, lofa að hafa um hönd skírn og kveldmáltíð eftir innsetningu drottins og venju hinnar dönsku þjóðkirkju og eftir beztu sannfæringu að prédika fagnaðarerindið samkvæmt heil. ritningul)«. I allri þess ari baráttu danskra presta fyrir kenningarfrelsinu heyrist bergmál orða Grundtvígs: »Hverjum presti i ríkis- eða þjóðkirkju verður að vera heimilt að segja það, sem hann sem heiðarlegur maður álítur sannast og réttast um biblíu og kristindóm, ef menn á vorum dögum eiga að geta lagt trúnað á orð hans. Sé honum ætlað eingöngu að muðla fyrir munni sér allar trúargreinarnar gömlu, hlýtur að fara fyrir lútersku trúnni líkt og farið heflr fyrir hinni katólsku : Trúin verður mentuðum mönnum ómögulegur hlutur«.2) A næstliðnum vctri heflr mjög mikið verið rætt um afstöðu presta við játningarritin i norsku kirkjunni. Thv. Klaveness, sem eftir allri andastefnu sinni er fullkominn kenningarfrelsismaður, kom þar hreyflngu á málið með fyrirlestri um »þýðingu játningarritanna í lútersku kirk- junni«3. Þeir, sem í vetur taka málið upp til umræðu, heimta að vísu ekki fult kenningarfrelsi, heldur heimta þeir flestir, að feldar séu úr gildi nokkrar af játningum þeim, sem lögum samkvæmt gilda í Noregi, og vilja miða játningarskuldbindinguna við postullegu trúarjátninguna eina og fræði Lúters hin minni. Aðalflutningsmenn þessa máls eru nafnkendir menn úr hóp hinna íhaldssömu norsku kennimanna, prestarnir H. N. Hauge frá Skien, sem fyrir nokkru var kirkjumálaráðgjafi, og L. Dahle í Stavanger. Þeir flvtja mál sitt á hinum árlega norska kirkjufundi Sbr. einkarfróðlega ritgjörð eftir lic. theoL Lindegaard-Petersen: „Symbolforpligtelsen i den danske Kirke“. Theol. Tidskrift. 1908. 2) Tilvitnuð orð,tekin eftir Norsk Kirkeblad 1909 bls. 18'i, eru sennilega úr riti Grnndtvigs: Den danske Statskirke upartisk betragtet. Kh.1834. *) Þetta ágæta erindi er prentað i „For frisindet Kristendom I. •Christj. 1906“.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.