Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 22

Skírnir - 01.08.1909, Page 22
214 Prestarnir og játningarritin. ingi, að lengra yrði ekki komist, og skal eg því snúa mér að þeirri hlið málsins. — 3. Þegar litið er á efni og búning játningarritanna, fær það ekki dulist, að svo merkileg sem þessi rit eru, þá eru þau þó ófullkomin mannasmíði, sem i flestu tilliti bera á sér fingraför sinna t i m a. Það gæti i fljótu bragði virzt lítt skiljanlegt hversu rit þessi vaxa í áliti og gildí eftir því sem líður frá sið- bótartímabilinu, sérstaklega þegar þess er gætt, hve fjarri það var siðbótar-höfundunum sjálfum að eigna slikt gildi sérjátningum sínum. En til þess eru þó harla eðlilegar orsakir. Fyrst ber að nefna hin miklu umskifti, sem verða við það, að algildi páfans dettur úr sögunni með siðbót- inni. Meðan hin miklu ljós siðbótarinnar stóðu enn á uppréttum fótum, var þetta þó ekki svo mjög tilfinnan- legt, því að menn gátu leitað til þeirra með öll sín vafa- mál, og gjörðu það líka. En þegar fram liðu stundir og þessi ljós voru sloknuð,tóku hinir leiðandi menn kirkjunn- ar, guðfræðingarnir sjálfir, að gjörast býsna sundur mála í skoðunum sínum á ýmsum trúar- og kenningar- atriðum; þá var það eðlilegt, að menn leituðu til rita sjálfra siðbótar-höfundanna og þá einkum þeirra, sem stóðu í nánustu sambandi við stofnun siðbótarkirkjunnar, til þess að fá leyst úr vanda- og vafaspurningum sínum, það því fi emur sem gjöra varð að sjálfsögðu ráð fyrir fullkom- inni samhljóðun þeirra við guðs orð í heilagri ritningu. Við þetta hlaut ritum þessum að vaxa álit, sérstaklega þó þeim, sem ætla mátti, að hefðu að geyma steínuskrá hinnar siðbættu kirkju. En svo bættist annað við, sem ekki varð afdrifaminna í þessu tilliti: Kirkjan verður ríkiskirkja og stjórnendur landanna æðstu biskupar hver í sínu landi. Þegar nú til þess kom að skipa fyrir um ýmis andleg mál kirkjunni viðkomandi, þurfti handhægr- ar lögbókar til þess að fara eftir, svo góð regla mætti haldast, og slika handhæga lögbók fundu stjórnendurnir þar sem játningarritin voru. I þessu tilliti nutu þeir —

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.