Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1909, Side 28

Skírnir - 01.08.1909, Side 28
220 Prestarnir og játningíarritin. og með hliðsjón á alveg sérstökum sögulegum kringum- stæðum. I fæstum orðum: Þeir gleymdu hinu gamla,. góða postullega orði, sem aldrei fyrnist, orðinu um þekk- inguna, sem er í molum. En þar sem vér verðum að játa að þekking vor sé öll i molum, getur það aldrei réttlæzt til lengdar að heit- binda kennimenn kirkjunnar við útlistanir löngu liðinna alda á sannindum kristindómsins, eins og þar væri um hinn algjöra sannleika að ræða. 4. En það sem að síðustu gjörir kröfuna um kenningar- frelsi presta öllu öðru fremur réttmæta er þó það, að þ e s s i eiðbinding eða heitbinding prestanna við játningarritin ríður algjörlega í bága við höf uðfrumreglu vorrar evangelisk- lútersku kirkju, sem var undirrót allrar siðbótar- innar. Hver var þessi höfuðfrumregla? Þessi höfuðfrumregla var sú, að heilög ritning skyldi vera hin eina óbrigðula regla og mælisnúra trúar og kenningar í kirkjunni á öllum tímum. Hvers vegna? Af því að heilög ritning og hún ein hefði að geyma hinn ei- lífa og óbreytilega sannleika til sáluhjálpar. Það var lif- andi tilfinning Lúters fyrir þvi, að katólska kirkjan hefði hrakist af réttri braut inn á skaðlegar villubrautir, er hún sctti erfikenninguna (en til eifikenningarinnar ber að telja játningarritin) yfir ritninguna, er meðal annars hratt honum út í baráttuna við veraldarinnar voldugasta félag — hina katólsku kirkju — og knúði hann til að yfirgefa móðurskaut kirkjunnar, er hann sá hve fjarri það var henni að þekkja sinn vitjunartíma. Og þetta var enn ekki fallið í gleymsku er Samlyndisreglan varð til — hið mikla trúfræðilega deilurit, sem viða í lúterskunr löndum hefir verið lögfest játningarrit, þótt ekki sé pað svo hjá oss né í hinu danska ríki. I inngangi rits þessa, senr er samið á árunum 1570—80, er gjörð grein fyrir afstöðu játningar- ritanna til ritningarinnar, með svofeldum orðum: »Játn-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.