Skírnir - 01.08.1909, Page 46
238
Abraham Lincoln.
Og jafnvel Lincoln sjálfur hafði 1848, er Texas brauzt
undan Mexico, lýst því yfir á samveldisþinginu, að hver
þjóð, sem hefði vilja og orku til þess að rísa gegn stjórn
sinni, hefði fulla, heimild til þess. En hvernig sem á þetta
er litið, varð samveldishugsjónin og ríkiseiningin yfirsterk-
ari hjá Lincoln. Hann var sjálfur borinn og barnfæddur
í einu af vestari ríkjunura, sem höfðu eflst og dafnað í
skjóli alríkisins, og fyrir því var alríkishugsjónin honum
fyrir öllu og liðum hans þar vestra.
En honum reis hugur við borgarastyrjöld og afieið-
ingum hennar og vildi því komast hjá henni í lengstu
lög. Honum var og fullkunnugt um, að Suðurríkin voru
miklu betur undir ófriðinn búin en Norðurríkin. Undan-
farin ár höfðu menn úr Suðurríkjunum eða þeirra iiðar
farið með æðstu stjórnarvöldin og höfðu þeir ekki látið
sitt eftir liggja að búa alt sem bezt í haginn fyrir Suður-
ríkin, en rýrt sem mest mátti hervarnir og fjárþol Norð-
urríkjanna. Þannig var fjárhirzla ríkisins tóm, er Lincolu
tók við stjórninni, og lánstraustið engan veginn ábyggilegt.
Hermálaráðgjafi hinnar fyrirfarandi stjórnar hafði byrgt
Suðurríkjamenn að vopnum og verjum úr hergagnabúrum
Norðurrikjanna, og flotamálaráðgjafinn hafði sent herskip
Bandamanna út og suður í allar áttir, svo að Lincoln átti
að eins fám skipum yfir að ráða, er hann settist að völd-
um. I flestum emhættum sátu lýðvaldsmenn, er var miðl-
ungi vel treystandi, og loks voru sum stórveldi hér í álfu,
sem litu öfundaraugum til uppgangs Bandaríkjanna, þess
albúin að skerast í leikinn, ef færi gæfist, og viðurkenna
sjálfstæði Suðurríkjanna.
Þegar þessa er gætt, verður mönnum skiljanlegt að
Lincoln fór að engu óðslega, heldur beið átekta. En
styrjöldin varð óumflýjanleg, er Suðurríkjamenn í apríl
1861 réðust á Sumter-virki í Suður-Carolina og unnu það.
Hann bauð þegar út 75,000 manna og neytti allrar orku
að koma upp hervörnum á sjó og landi og örva þrek og
föðurlandsást Norðurríkjamanna.
Ráðaneyti sitt skipaði Lincoln ýmsum helztu atkvæða-