Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1909, Side 56

Skírnir - 01.08.1909, Side 56
248 Betur má ef duga skal. spekinni ensku með heimspekinginn Locke i broddi fylk- ingar. Englendingar höfðu alla jafna látið sér annara um líkamsíþróttir en aðrar þjóðir álfunnar á niðurlægingar- tímum leikfimirmar, og mun það einkum hafa verið að þakka kynþáttunum norrænu, er hlandað höfðu hlóði við þá þjóð, ekki sízt aðalsstéttinni normönsku; enda mun óefað mega telja Englendinga þrekmestu þjóð nútímans. Nú kemur öllum uppeldisfræðingum mentaþjóðanna saman um, að leikfimin sé til þess kjörin, að endurreisa hið horfna menningarjafnvægi kynþáttanna, að skapa líkamsþrótt, er vera megi andlegu menningunni traust bakhjarl, að vekja karlmenskuþor og lífslöngun, er vega megi á móti kveifarskap og lífsleiða, sem löngum er sam- fara ýmsri andlegri óhollustu, og loks til þess að glæða fegurðarvit, hreinlætisást, samheldishug og samvinnugleði hjá æskulýðnum. Fyrir leikfiminni berjast nú allir þeir, er láta sér ant um traustan þroska þjóðar sinnar. Og hún hefir þegar orðið til ómetanlegs gagns. Þó getur enn að líta — jafn- vel meðal hins upprennandi mentalýðs stórborganna, er átt hefir kost á góðu uppeldi — helzt til mörg sorgleg dæmi um úrkynjan og magnþrot fjölda kynþátta, unga menn af svonefndum góðum ættum, er hengslast áfram um æskuskeiðið, knjábognir, bringubrenglaðir og bjúgir í herðum, fölir á kinnar, ástsjúkir i augum og öldungis þrekvana og hirðulausir um að gegna skyldu sinni, ung- menni, er telja sér það jafnvel sóma að svíkja sjálfa sig og þjóð sína um undirbúning undir lífið, en láta sér nægja að henda á lofti á torgum, veitingahúsum og lestrarstofum sundurlausa »andríkis«-mola, er þeir hröngla saman í stað- lausar sálir sínar — og þykjast mikilmenni af, er þeir geta hreytt framan í menn einhverju af þeim ómelta rusla- varningi. Sá hópur er glæsileg bráð fyrir andlega og líkamlega farsýki, og glögt dæmi þess, að leikfimin á enn mikið og torsótt verkefni fyrir höndum, áður en kynspill- ingin er yfirbuguð og allur þorri ættleggjanna hefir náð

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.