Skírnir - 01.08.1909, Qupperneq 72
Út af æfisögu Péturs biskups.
i.
Nokkrar leiðbeiningar og athugasemdir við ritdóm
um æfisögu Péturs biskups.
Fáeinar missagnir hafa slæðst inn í ritdóm eftir hr. adjunkt
Þorleif H. Bjarnason (Skírnir 1909 bls. 77—85) og leyfi eg mór
að leiðrótta þær til þess aðrir taki þær ekki eftir i hugsunarleysi.
Bls. 80 segir höfundur að líkur séu til, að dr. Pótur Pétursson
hafi fengið nokkur drög til kirkjusögu sinnar og doktors-ritgjörðar
hjá hinum margfróða tengdaföður sínum Boga Benediktssyni; héfir
höf. þetta eftir Jóni Þorkelssyni rektor, sem aftur kvað hafa borið
Jón Pótursson háyfirdómara fyrir því. Þetta er auðséður misskiln-
ingur. Kirkjusagan var fullprentuð vorið 1841, þá var Bogi ekki
orðinn tengdafaðir Póturs prófascs, en milli þeirra var áður enginn
kunningsskapur og efasamt hvort þeir hafa sést; Jón Pétursson
var þá enn við nám í Höfn, varð cand. juris 5. nóv. 1841. í
doktors-ritgjörðinni, sem kom út 1844 eftir að Pótur Pétursson
var orðinn tengdasonur Boga, eru að eins almenn söguleg fræði, sem
hver og einn átti hægt með að útvega sór og er engin ástæða til
að halda að dr. Pétur hafi þurft að fá sór þá fræðslu frá öðrum,
sem hægt var að fá í algengum prentuðum bókum. Til eru enn
mörg bréf, sem farið hafa milli dr. Péturs og Boga og í þeim er
hvergi minst einu orði á söguleg fræði. Þessi getgáta um áhrif
Boga Benediktssonar á vísindaleg rit dr. Póturs er því sýnilega röng.
Eg hefi í athugasemd á bls. 149 getið þess, að það muni hafa
verið í þinglok 1867 sem dr. Jón Hjaltalín sagði hin alkunnu orð'
við Jón Sigurðsson: »Nú ert þú búinn að vekja upp þann draug«<
o. s. frv., en eg fullyrði það ekki. Höf. segir að Jón Hjaltalín
hafi talað hin umræddu orð á Bakarastígnum 1873. Það er varla
sennilegra. A Þingvallafundinum 1873 var Jón Sigurðsson í minni
hluta, þá hafði spádómur Hjaltalíns ræzt, Jón gat ekki ráðið við