Skírnir - 01.08.1909, Qupperneq 76
268
Ut af æfisögu Pétuis hiskups.
hans 18. okt. s. á. (88 ára). Jón Konráðsson, sem eg fór eftir,
segir þau bæði hafi dáið í sept. 1803. Pétur prófastur og Þóra
Brynjólfsdóttir giftust 24. apríl 1805. Hinir mörgu ritdómar um
æfÍ8Ögu Póturs biskups hafa annars ekki flutt neinar n/jar upplys-
ingar eða leiðréttingar. Að eins í Nýju Kirkjublaði (1909, bls. 93)
hefir staðið ágæt smásaga, sem eg mundi hafa sett í bókina, hefði
eg þekt hana. Sagan greinir frá heilræði, sem Pétur biskup gaf
síra Þórhalli, er hann varð prestur í Reykholti, um fyrningar á
heyjum og prédikunum; hún lýsir ágætlega, hve kýminu dr. Pétur
oft var og smáskrítinn og sýnir, að hann var mannþekkjari, er haun
sá fyrirfram hvílíkur fyrirtaks búmaður Þórhallur biskup mundi
verða.
Þorv. Thóroddsen.
II.
Svar til prófessors Þorvalds Thóroddsen.
„Einem unbefangenen Beurteiler muss es fast unglaublich erscheinen,
dass man die Bedeutung des Psychischen fiir den Zusammenhang der
Begebenheiten jemals unterschiitzen oder gar ableugnen könnte, wie es
öfter geschehen ist und nochgeschieht. Denn die geschichtlichen Begeben-
heiten sind doch nicht anderes als Bethatigungen des menschlichen Em-
pfindens, Vorstellens, Wollens, Bethátigungen jener psycho-physischen
Einheit, die wir Seele oder Geist nennen“.
Ernst Bernheim: Lehrbuch der historischen Methode (Leipzig
1894) 499. hls.
I upphafi i>leiðréttingH« sinna og athugasemda segir herra Þor-
valdur Thóroddsen prófessor, að eg hafi í ritdómi mínum um æfi-
sögu Péturs biskups í þ. á. Skírni 80. bls. sagt, »að líkur sóu til
að dr. Pétur Pétursson hafi fen^ið nokkur drög til kirkjusögu
sinnar og doktorsritgerðar hjá hinum margfróða tengdaföður sínum
Boga Benediktssyni«. Til þessara ummæla hof. liggja þau svör,
að í ritdóminum hefi eg ekki viðhaft orðið líkur, heldur gerði mér
einmitt far um af ástæðum, sem þegar skulu greindar, að orða þenna
orðasveim eins varkárlega og mér var unt með svofeldum orðum:
»Skulu engar brigður bornar á það« (að Pjetur hafi safnað efni
til kirkjusögunnar þau rúm fjögur ár, sem hann stundaði uám í
Kaupmannahöfn), »en vera má og að hann hafi fengið nokkur