Skírnir - 01.08.1909, Qupperneq 92
284
Erend tíðindi.
Loftförin eru, eins og kunnugt er, tvenns konar, loftskip og
flugvélar. Loftskipin halda sér uppi með geysimiklum belgjum eins
og vindlum í lögun, fyltum gasi eða öðru, sem léttara er en loftið.
En flugvélarnar fljúga beinlínis með vængjum eins og fuglar. Yól-
ar knýja hvortveggja áfram.
Hingað til hefur verið lagt mest kapp á loftskipin og þau
hugsa menn sór til hernaðar. Þau geta borið gríðarþunga eftir
stærð gasbelgsins. Þau eru nú komin svo langt, að Zeppelin greifi
flaug 28. ágúst yfir þvert Þýzkaland sunnan frá Bódenvatni við
Sviss og norður til Berlínar á rúmum degi. Keisarinn og Þjóðverj-
ar hoppuðu af kæti. Zeppelin er nú áttræður.
Flugvólarnar hafa þó vakið enn meiri furðu. Bleriot, frakk-
neskur maður, flaug á vél yfir Englandssund 25. júlí. Fór upp
skamt frá Calais og yfir til Dover 4x/2 mílu á 27 mín. Það fara
fljótustu skip á 50 mín. Vól Bleriots er lítil, vængir 7 álna en 3
breiðir og kostar aðeins 3 til 4 þús. króna. Bleriot er 37 ára og
hefir unnið að þessu ein 9 ár.
Þá var og véla kappflug í Reims síðasta hlut ágúst og stóð f
viku. Þar flaug Farman lengst, 36 mílur og það á 3 stundum.
Harðast flaug Curtiss, amerískur; hann fór míluna á 5 mín. eða
12 mílur á kl.stund og færi yfir þvert Island á 38/4 stundar. Hetta
verða flugfarar að hafa og hlíf fyrir vitum sór, svo þeir geti and-
að í þeim stormi sem þeir gera. Farman flaug með 2 farþega og
hæst var þar farið 600 fet í loft. Þetta hefur unnist mest á 3
árum og hver veit hvað verður að ári.
Svíþjóð. Þai hefur verið verksynjun lengst sumars en alls-
herjar verkfall síðan 4. ágúst. Upptök þessarar landshörmungar
voru þau, að verksamningar milli pappírsgerðar , vatns og vegagerð-
ar félaga vóru á enda 1. nóv. í fyrra. Sögðu verkkaupendur ár
ilt og laun of há og vildu lækka. 011 gáfu fólögin stórarð og gengu
þó verkmenn að því, að lækkað væri un» 2 af hundraði, en hinir
heimtuðu meira. I því samningastappi gekk fram í maí í vor.
Þá samþyktu nokkur félög önnur þessa lækkun, sem verkmenn
buðu, en þeir töldu þar rofna samninga og lögðu nokkur hundruð
niður vinnu. Þessu svöruðu félögin með því, að reka 13,000 félaga
þeirra úr vinnu, svo þeir gætu ekki hjálpað félógum sínum og
hungrið unnið á þeim öllum. En þegar verkmenn gugnuðu ekki
að heldur, ráku fólögin 50000 úr vinnu 26. júlí og hótuðu að láta
það verða 80,000 2. ágúst, ef þetta dygði ekki. Auk þess heimt-