Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1914, Side 15

Skírnir - 01.01.1914, Side 15
Fyrsta utanför mín. 15- sjálfur, setíi hafði kynst mér heima ; þá þeir drengilegu Blöndalsbræður Magnús og Gunnlaugur, og fanst mér einkum til um Magnús, því fríðari og fjörlegri mann hafði eg sjaldan séð; þar var og Magnús frá Vatnsdal, ungur og lítið meir en hálfvaxinn piltur. Það var landshöfð- inginn tilvonandi. Og enn sátu þar tveir og þrættu um búskaparefni, og þótti mér annar miklu mælskari hinum, sem var afarstór og þreklegur maður, en hinn grannleg- ur, en skarpur mjög á svipinn. Mennirnir voru Stefán Björnsson, síðar sýslum., en hinn Benedikt Sveinsson, voru þá nýútskrifaðir. Sagði eg síðar við einhvern, að mér fynd- ist hinn stirðmæltari þeirra tveggja vera líklegri til að búa vel á íslandi, heldur en hans mælski andmælandi. Aðrir nafnkunnir stúdentar í Höfn þann vetur voru; þeir Arnljótur Olafsson, Guðbr. Vigfússon, Bergur Thor- berg, Hermann E. Johnson, Jón Thorarensen, S. L. Jón- asson, Lárus Sveinbjörnsson. Þann vetur var þar og Páll Melsteð sagnfræðingur, — svo og hitti eg nokkra eldri íslendinga þar, svo sem Magnús Eiríksson, Konráð Gísla- son, Oddgeir Stephensen og Gísla Brynjúlfsson. Af öllum þeim mönnum, sem eg hér hefi nefnt, lifa nú, er þetta er skrifað, tveir einir, auk mín, þeir Magnús landshöfðingi og Steingrímur Thorsteinsson. Af öðrum nafnkunnum Is- lendingum kyntist eg Grími gamla Þorlákssyni tannlækni, hann var Eyhreppingur og þótti göfugmenni. Svo varð eg kunnugur þeim ríku Vesturlandsreiðurum, Sandholts- bræðrum. Langmest fanst mér um Jón Sigurðsson, og kom oftast í hans hús. Var hann og sjálfkjörinn höfð- ingi nálega allra Islendinga í Höfn, og hélzt það alla stund meðan liann lifði. Tvisvar siðar sigldi eg til Hafnar og sá nýja og nýja kynslóð íslenzkra stúdenta, og þrisvar sinnum heíi eg ver- ið í Höfn síðan þessi öld hófst. En minnisstæðust er mér mín fyrsta dvöl þar, eins og geta má nærri; ungum verða áhrifin dýpst og drjúgust; það er og sannast að segja um mig, að megi eg teljast mentaður maður, er það mest að þakka utanferðum mínum, og því, að eg negldist hvergi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.