Skírnir - 01.01.1914, Side 33
Dönsk barátta um andlegt frelsi.
33
gervalla guðs leyndardóma. Eg ætla ekki að hafa þenn-
an samanburð lengri.
Af ummælum danskra blaða er það bersýnilegt, að í
Danmörk búast menn hálft í hvoru við því, að þetta mál
geti riðið þjóðkirkjunni þar að fullu. Og svo er ekki ein-
göngu í Danmörk. Blað það, er Lyder Brun, prófessor í
guðfræði við Kristjaníuháskólann gefur út, »Korsk Kirke-
blad«, kemst meðal annars svo að orði í ritstjórnargrein
um málið: »Ekki getur hjá því farið, að mönnum fari
að finnast það vafamál, hvort nútíðarríki geti haldið við
sambandi sínu við þá kirkju, er markar andlegu frelsi
presta sinna svo þröngt svið, og gerir það fyrir forgöngu
biskupa sinna og með tilstyrk borgaralegra og borgaralega-
kirkjulegra lögtækja. Mörgum mun virðast svo, sem slíkt
félag sé ekki vel til þess fallið að vera þjóðkirkja, þó að
það auðvitað verði að hafa rétt til þess að setja sig á
laggirnir sem fríkirkjufélag«.
Einsætt virðist, að þessi skoðun norska prófessorsins
hljóti að vinna sigur. Þjóðkirkja, sem ofsækir sannleiks-
leitina, er óhafandi. Og hún er lítt hugsanleg til lengdar.
í henni er á þessum tímum að sjálfsögðu svo marg-
breytileg þekking og svo margbreytilegar skoðanir, að
hún getur tæplega beitt ríkisvaldinu til langframa í þágu
þröngsýnisins og vanþekkingarinnar. Um fríkirkju er
öðru máli að gegna, Hún getur verið miklu samfeldari
heild; skoðana-eindrægnin getur verið þar miklu meiri.
Og hún gerir sínar ráðstafanir án íhlutunar ríkisvaldsins.
I því er hennar aðalhætta fólgin, að ófrjálslyndinu er auð-
veldara að dafna þar en í þjóðkirkju — þar til er hún
stirðnar og deyr, eins og enski biskupinn segir.
Eins og nærri má geta, hefir ekki staðið í Danmörku
á gömlu tuggunni um það, að Arboe-Rasmussen hefði átt
að segja af sér embætti sjálfkrafa. Hann geti vel verið
mikið góður og guðrækinn maður, en hann sé kominn í
ósamræmi við sína kirkju, og fyrir því eigi hann að fara.
Og það eigi hann sjálfur að sjá. Það er sjálfsagt vafn-
ingaminst, og að sumu leyti getur það verið ánægjulegra
3