Skírnir - 01.01.1914, Qupperneq 41
Hvað er dauðinn?
41
anir þeirra séu bygðar á tilfinningum en ekki á rökréttri
hugsun. Þeir halda því sem sé fram, að kenning sín um
það, að sálin göfgist og þroskist á því að lifa upp aftur
og aftur hér á jörðu, og það þvi fyr, sem hún gerir sér
meira far um það, sé hin eina trúarkenning, er fullnægi
til hlítar réttlætistilfinning vorri. Að því leyti viðurkennir
höf. að þeir hafi rétt að mæla, og þykir honum þessi
framþróunarkenning þeirra í andans heimi bera langt af
kenning kristinnar kirkju um eilífa sælu og eilífa útskúfun.
Margir vísindamenn hafa þótst geta fundið sálnaflakk-
inu rök með dáleiðslu. Meðal þeirra er franskur maður,
de Eochas ofursti. Honum hefir tekist að gera ýmsar stór-
merkilegar tilraunir á ungri stúlku, 18 ára, Jósefínu að
nafni. Hún hefir í dáleiðslu rakið allan lífsferil sinn aftur
á bak, unz hún var orðin að fóstri í móðurlífi og gat ekki
lengur svarað spurningum hans öðruvísi en með lítilfjör-
legum hreyfingum. Þá jók Kochas svefn hennar enn, og
alt í einu svarar hún þá með óvæntri og ókennilegri rödd,
er það þá gamall og geðstirður karl, er mælir fyrir munn
hennar. Kveðst hann í fyrstu ekkert sjá og vera í myrkri;
smám saman rætist þó úr karli, honum verður liðugra um
málbeinið og segir til nafns síns, veikur kveðst hann vera
og liggja í kör. Hann rekur nú allan sinn æfiferil aftur
á bak. Hann hefir verið hermaður og segir margar frægð-
arsögur af sjálfum sér, og á meðan lætur unga stúlkan
sem hún snúi upp á yfirskegg á hermanna vísu. Karlinn
segir því næst frá, að hann hafi dáið um sjötugt, og að
hann hafi fundið vel, þegar hann afklæddist líkamanum,
en þó hafi hann verið viðloða við skrokkinn góðan tíma.
í fyrstu var hann eins og fljótandi, en smáþéttist með
tímanum. Hann var í myrkri sem honum leiddist, en leið
að öðru leyti vel. Loks sér hann glætu í myrkrinu, hon-
um kemur til hugar að endurfæðast og hann nálgast nú
konu þá, er á að verða móðir hans, þ. e. a s. móðir Jóse-
fínu. Hann heldur sig nú í nánd við hana, þangað til
barnið fæðist, og lykst svo smám saman inn í líkama
barnsins. Þangað til barnið var 7 ára að aldri, var jafn-