Fréttir frá Íslandi - 01.01.1875, Síða 18
18
LANDST.jÓUff.
Fyrfr EyjafjarðarsýsliT:
Einar Ásmundsson, hroppstjóri í Ncsi,
Snorri Pálsson, vcrzlnnarstjóri á Siglufirði.
Fyrir pingeyjarsýshi:
Benidikt Kristjánsson, prófastnr í Mfda,
Jón Sigurðsson, hreppstjóri á Gantlöndum.
Fyrír Norðurrrrúlasýslu:
Páll Ólafsson, umboðsmaður á Hallfreðarstöðum,
Eggert Gunnarsson, umboðsmaður á Espihóli.
Fyrir Suðnrmiílasýslu:
Tryggvi Gunnarsson, verzlunarstjóri í Kaupmannahöfn,
Einar Gíshtson, hreppstjóri á Höskuldsstöðnm.
pingið var sett í Reykjavik venjulegan dag, eða l.dag jiilímánaðar.
Voru jiar komnir allir fiessir fiingmenrr, nema Jón Blöndal, hinn fyrri ping-
maður Skagfirðinga; hann kom eigi til þessa pings. Landshöfðingi Hilmar
Finsen setti pingið að konungsboði, og birti pinginu boðskap konungs. I
ltoðskap sínum minntist bonungur á stjómarskrána, er voitti fulltrúum
pjóðarinnar fullnaðaratkvæði í löggjöf og fjiárstjórn landsins, og kvað hag-
sæld landsins nú að mikln leyti vera komna nndir pingmönnum. I>á gat
hann og um nokkur hinna helztu frumvarpa, er hann ætlaði að leggja
fyrir þingið, og skýrði stuttlega frá fiýðingu [teirra Enn fremur minntist
hann á forð sína til Islands árið áður, og hörmungar pær, er nú hefðu
dnnið yfir nokknm hluta landsins af cldgosunum.
Konungur hafði gefið út fiingsköp til hráðaMrgða, eins og ákveðið
var í stjómarskránni, og var fieim fylgt á ficssu fiingi. pingsköp fiessi
voru frábrugðin hinum eldri pingsköpum einkum að því leyti, scm fyrir-
komulag þingsins nú var annað en áður hafði verið. Samkvæmt þingsköp-
unnm unnu nú allir pingntenn cið að stjórnarskránni. pá skipti og þingið
sjer í 2 deildir eba málstofnr. í efri þingdeildina gengu hinir 6 konung-
kjörntt þingmenn og aðrir 6 þjóðkjörnir, cr þingiö kaus til þess, cn það
voru þeir: Eiríkur Kúld, Ásgeir Einarsson, Benidikt Kristjánsson, Torfi
Einarsson, Sighvatur Árnason og Stefán Eiríksson. í hinni neðri þing-
dcild voru hinir aðrir þjóðkjömu þingmenn. FofscHí hins sameinaða al-
þingis var kosinn Jón Sigurðsson frá Kaupmannahöfn, en varaforseti Berg-
ur Thorberg; þingskrifarar voru kosnir Halldór Friðriksson og Eiríkur
Kúld. Forseti f efri deild þingsins var kosinn Pjctur Pjetursson, en vara-
forseti EiríkurKúld; skrifarar voru kosnir Ólafnr Pálsson og Bergur Thor-
berg. Forseti í neðri deildinni var kosinn Jón Sigurðsson frá Kaup-
mannahöfn, en varaforseti Jón Sigurðsson frá Gautlöndum; skrifarar voru
kosnir Halldór Friðriksson og Guðraundur Einarsson. pá var og stofnuð
skrifstofa, santeiginleg fyrir háðar þingdeildirnar, og til forstjóra hennar
var tekinn utanþingsmaður, yfirdómari Magnús Stephcnsen. Landshöfð-
ingi Hilmar Finsen var á þingi, samkvæmt heimild þeirri, er landshöfð-