Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 02.01.1886, Blaðsíða 2

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 02.01.1886, Blaðsíða 2
2 vápnaða, svá sem til bardaga væri búnir . . . Létu þeir Egill bera inn fargjörfi sína í búð, en reka hesta i haga. Ok er þetta var sýslat, gekk Egill ok þ>orsteinn með flokkinn allan upp í þing- brekku, ok settust þar sem þeir vóru vanir at sitja“. Nú skal eg lýsa þessum stöðum, i sambandi við það, sem hér er sagt. Langá kemr úr Langavatni á Langavatnsdal, og rennr fyrir vestan Staðartunguna, sem kölluð er, þar til hún skiptist, og nefnist þá eystri kvíslin Gljúfrá. Langá rennr í útsuðr, fyrir vest- an Borgarhrepp, enn Gljúfrá rennr fyrst í landsuðr ofan að þing- hólsrétt, og síðan i útsuðr. Upp með Gljúfrá að vestanverðu, nær upp við Langavatnsdal, sem fyrr segir, heitir þinghóll, skamt upp frá ánni; niðr frá hólnum er brekka mikil, og með ánni eyrar, sem heita þinghólseyrar; hér er orðið víða blásið; þó sjást smá- hrisrunnar sumstaðar. í vestr frá hólnum sést fyrir biið, enn mjög óglögg orðin að hliðveggjunum; enn fyrir gaflhlöðunum sést; hefir búð þessi verið all-löng, og ein sú stœrsta, sem hér er sjáanleg; hún er milli 60 og 70 feta á lengd. Norðr undan þessari búð er önnur búð', hún er sú eina, sem hér er glögg; er hún 56—7 fet á lengd. Austnorðr undan þessum búðum hefir verið búð, og lík- lega stór; verðr hún ekki mæld, því hún er mjög óglögg; ekki verðr sagt með vissu, hvort hér hefir verið önnur búð hjá. í út- norðr frá þessum búðum sýnist hafa verið búð, þó engin lögun sjá- ist; fleiri búðir hafa hér getað verið, því víða, eru móar með nokkur- um jarðvegi hér á holtunum. fingið hefir verið á eyrunum nær ánni, og þingbrekkan þar upp frá; einkanlega er nú ein eyri sléttust rétt undan brekkunni. f>ar eru mest líkindi til, að þingið hafi verið. Úr ánni hefir grafið sig farvegr með brekkunum, og hefir það líka spilt staðnum; þar með brekkunum hafa og getað verið búðir, enn öll kennimerki eru orðin hér fornleg. finghóllinn, sem kallaðr er, er upp á brekkunni1; ofar á henni eru fleiri hólar minni, og einn með kletta- klöpp. Upp með Gljúfrá að vestan liggr vegrinn, þegar að sunn- an er komið; af þinghól eða brekkunni sést langt niðr með allri Gljúfrá; staðnum er því rétt lýst í Egils s., og til ferða Egils hefr hlotið að sjást, þegar hann reið upp með ánni og á þingið. Enn fremr segir sagan bls. 221—2, sem enn er athugavert: „£>orsteinn lét gjöra garð um þvera Grísatungu, milli Langavatns ok Gljúfrár. Lét hann þar vera marga menn um vorit. Ok er jporsteinn hafði litit yfir verk húskarla sinna, þá reið hann heim. Ok er hann kom gegnt þingstöð, þá kom íri hlaupandi á móti 1) Vera má og, að brekkan, öll yfir höfuð, sé af sumum kölluð þinghóll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.