Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 02.01.1886, Blaðsíða 16

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 02.01.1886, Blaðsíða 16
i6 einkanlega hafi hann ekki staðið á því harðari grundvelli; steinn, sem 4 menn geta valdið, er ekkert heljar-bákn að stœrð; rek- steinar verða helzt að hafa einhverja vissa lögun og hæð, að þeir séu hentugir. Með því að eg hefi ekki heyrt leika neitt orð á neinum öðrum steini nú, enn þeim er mér var sýndr, og ekki getr síra þorkell um neinn annan, og leitaði hann þó eftir þessu, þá sýnist þessi steinn Olafs líka vera horfinn, og er það því eðlilegra, sem grafið var alt í kring um steininn og undir hann, til að geta skoðað hann og mælt, enn við þetta hefir steinninn sokkið því lengra niðr, og því auðveldlegar orðið jörðu hulinn með tímanum. Enn hvernig sem þetta er, þá eru þessir steinar að engu merki- legir, þar sem hvorugr er sá sem sagan lýsir. Mér þótti þörf að sýna fram á þetta, til þess að menn ekki bendli það við söguna, sem stríðir á móti orðum hennar; þessi dœmi sýna og enn, hvað vandséð það kann að reynast, að byggja mjög á munnmæla- sögnum. Hvað því viðvikr, þegar Skallagrímr sótti steininn, þá væri ekkert undarlegt, að hér kynni að standa þannig á, að á þessum stað hefði sagan blandazt með forneskju, þar sem Skallagrímr átti svo skamt að telja til hinnar rammauknu Hrafnistu-ættar, sem full er af hamremmi og hrikalegum stórvirkjum; þetta myndi ekkert lýta söguna eða trúverðugleik hennar; slíku bregðr svo oft fyrir í vorum merkustu sögum, og var yfir höfuð einkenni þeirrar tíðar. Enn eg er alls ekki viss um, hvort þetta þarf þannig að skiljast; sagan neitar því ekki, að Skallagrímr kunni að hafa haft menn með sér, enn segir blátt áfram frá þessu, og nefnir hann einungis, eða formanninn, eins og hjá oss er enn í dag siðr. Skallagrímr gat hafa séð stein í botninum, þar sem grunt var, sem honum leizt vel á, og farið þá utanborðs og komið undir hann böndum, og hafið svo steininn með mannhjálp upp í skipið. Enn um þetta skal eg hvern láta ráða sinni skoðun. Miðfjarðareyjar eru nú kallaðar Borgareyjar, nokkuð margar eyjar og sker, og liggja svo sem hálfa viku sjávar nær í suðr frá Rauðanesi. Anabrekka er i útvestr frá Borg, svo sem meðal-bœjarleið; eru þar mýrar á milli. Hafslœkr hefir sama nafn enn í dag, og er enn landamerki á milli þeirra bœja; hann er nokkuð nær Borg enn Ánabrekku. Hafslœkr kemr úr svokölluðu Hafsvatni, og kemr tilsjávar í Brekkunesi1. Fyrir sunnan hafslœk eða Borgar megin er Stakksmýri; enn nú er það svæði kallað Breiðin, og liggr við 1) Annars er lœkrinn kallaðr Hafrslœkr bls. 57: «Án gaf hann (Skallagrímr) land milli Laugar og Hafrslœkjar«, enu síðar, bls. 211 og 213, er hann kallaðr Hafslœkr; nú i daglegu máli mun hann kallaðr Háfslœkr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.