Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 02.01.1886, Side 75

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 02.01.1886, Side 75
75 hvárutveggja landinu, en er þeir voru þar komnir, þá laust hvidu í seglit ok hvelfdi skipinu. þorkell druknadi þar ok allir þeir menn er med hönum voru; viduna rak vída um eyar, horn-stafina rak í þá ey er Staf-ey heitir sídan. Sköfnungr var festr vid innviduna í feriunni; hann hittist vid SkÖfnuilg'S-ey“. Eg skal þá að sfðustu bera þessa grein saman við, hvernig hér til hagar. f>að er þá fyrst, að hér er Hvammsfjörðr nefndr einu nafni og Breiðifjörðr, ok kemr það viðar fyrir í sögunni; það er eins og Breiðafjarðardalir, sem heita svo enn í dag, sem kunn- ugt er, og liggja þeir þó beinlínis inn af Hvammsfirði; að kenna við Breiðafjörð er líklega það elzta. Svo er að sjá af því, hvernig af skipinu rak og fl. að þetta hafi verið norðan áhlaupsveðr, sem gerði, enn um morguninn hefir verið kyrt veðr, enn líklega útlits- ljótt, og hann þá rokið alt i einu upp á norðan, sem oft kann verða; þegar kemr út fyrir Skorravíkiirmúla, sem er langt út með firðinum að norðanverðu, beygist fjörðrinn mjög, og verðr vindr úr því nokk- uð þverstœðr, meðan hanu er á hátt norðan, og er þá ákaflega byljóttr þar ofan af fellunum; þeir forkell hafa því lítið getað við ráðið, enn kirkjuviðr enginn þœgðarfarmr í ofsaverðri. Nafnið Bjarnarey er nú fyrir mjög löngu týnt; enn þetta getr engin önnur ey verið enn Lamiey, sem liggr nær á miðjum firðinum, fram und- an Staðarfelli; hún er þar mjög svo einstök og hlaut einmitt að vera á leið þeirra þ>orkels, nefnil. hann sigldi fyrir sunnan hana. í Vilchins máld. er nú reyndar ey þessi kölluð Lambey; enn það gerir alllítið til: langr tími var liðinn frá því að helztu viðburðir munu hafa verið ritaðir úr Laxd., og þangað til að hann var fcerðr í letr, og á þeim tíma hefir nafnið breyzt um og fl. Ut af Lamb- ey liggja svo kallaðar Steindórseyjar og liggja saman, hafa því all- ar heitið sama nafni; þær eru má eg segja þrjár. Ut og suðr af Lambey er boði eða blindsker, sem nefndr er þorkelsboði, og eru það munnmæli, að þorkell hafi drukknað þar, enn orð sögunnar eru sem áðr er sagt, að hvida laust í seglit; menn hafa einmitt séð, þegar jþorkell drukknaði, eins og sagan segir að menn sáu ferð hans af hvorutveggja landinu, þ. e. Fellströnd og Skógarströnd-, fjörðrinn er þar ekki breiðari enn svo. Stajey er ein af þeim svo kölluðu Gjarðeyjum, sem liggja langt út og suðr á firðinum, nær Skógarströnd; þessar eyjar eru eign Snóksdalskirkju; það er því eðlilegt, að nokkuð af viðnum ræki hér, eftir vindstöðu á norðan, einkannlega hafi útstraumr verið á firðinum. J>að eru ýmsar mein- ingar um Sköfnungsey, hvar hún muni vera; í sóknalýsingu frá 1839 fyrir Hvamm og Fellströnd, segir, að Ölvissker hafi áðr verið nefnt Sköfnungsey1; þetta Olvissker er fyrir vestan þær áðrnefndu Stein- 1) Sjá Kálund I. 497, því eg hefi ekki sóknalýsingarnar, þær eru allar í Kaupmh. io:*

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.