Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Blaðsíða 83
83
mun hún þá hafa gilt eina vætt á landsvísu. Um langt skeið hefir
ábúandi Arnarbælis greitt presti 4,00 kr. árlega í svo-nefndan bæn-
hússtoll.
Fyrir utan túnið í Arnarbæli er mýri, sem Kvíaholtsmýri heitir
(19). Fyrir norðan mýrina, rétt við vesturhorn Bæjarborgarinnar, er
hóll, sem Kiðhóll heitir (20). Á hól þessum hafði lengi staðið kofi,
sem kiðfé var hýst í. Siðan kofi þessi lagðist í auðn, munu vera
um 60 ár, og janfnlangur tími síðan kiðfé hefir verið ræktað í
Arnarbæli.
Fyrir sunnan Kvíaholtsmýrina er holt, sem Kvíaholt heitir (21);
mun holtið hafa fengið nafnið af kvíum, sem eru á holtinu og ær
voru nytkaðar í á sumrum. Á hverjum bæ voru til kvíar, því að al-
staðar, undantekningarlaust, var fært frá (lömbin tekin frá ánum)
fram til 1900. Eftir þann tíma fóru ýmsir að hætta að færa frá, og
mun það að mestu hafa stafað af því, að erfiðara varð með ári hverju
að fá góða smala og dyggar og vandvirkar mjaltakonur til að mjólka
ærnar. Síðan hafa kvíarnar víðast hvar eyðilagzt, og sést aðeins fyrir
þeim á sumum stöðum. — Kvíaholtið er allstórt um sig. Suður-af
því er Músarnesið (22), sem gengur suðaustur fram í Arnarbælis-
voginn. Að vestan myndar þetta nes Rifjavogurinn (23), sem gengur
í norðvestur úr Arnarbælisvognum; nær þessi vogur alla leið upp
undir Húsaholtið (24). Tvö grjótrif eru yfir voginn. Eftir fremra grjót-
rifinu er vanalega gengið, þá er frarið er fram í Litla-Dagverðarnes
og lágsjávað er. Leirbleyta er í vognum, og því ekki hægt að komast
yfir hann, nema á þessu rifi, þótt um fjöru sé. í Rifjavoginn falla 2
smálækir, Flæðilækurinn (25), sem hefir upptök sín í flóanum fyrir
utan Húsaholtið og fellur í botn Rifjavogsins, og svo-nefnd Húsa-
kelda (26), sem er fyrir utan Kvíaholtið og hefir upptök sín í Bæjar-
borgarflóanum (27), sem er á milli Bæjarborgarinnar og Húsaborgar-
innar (28). Kelda þessi er illfær yfirferðar, vegna leirs, sem í henni
er. Fyrir utan Húsakelduna er stórt holt, sem heitir Húsaholt (29).
Neðst og utast á því er hár hóll, sem heitir Rifjavogshóll (30). Fyrir
ofan og utan Húsaholtið eru Arnarbælis-fjárhúsin (31); standa þau
undir hárri klettaborg, sem heitir Húsaborg (sjá 28) og er með
nokkrum skógargröðri. Á þessum stað hafa fjárhúsin í Arnarbæli
staðið í fleiri mannsaldra. í kringum fjárhúsin er tún (Fjárhúsatúnið, 32)
sem mun vera um 2 dagsláttur að stærð. Eftir að það tún var girt,
fékkst af því fullkomið kýrfóður af töðu. Fyrir utan Fjárhúsatúnið
er Húsamýrin (33), og fyrir utan hana eru Húsaásarnir (34), sem eru
lág holt með smá-hrísrunnum, en gróðurlaus á milli. Fyrir ofan
Húsaásana er flói, sem heitir Húsaborgarflói (35); liggur hann frá
6*