Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Page 105
105
hefi ég heyrt nefnda Stangarstaði (165). í vestur frá Stangarárbotnum
er Harði-völlur (166), og neðar Harða-vallar-klif (167). En nyrzt á
Harða-velli, næst Svíná, var sæluhús fram-yfir miðja nítjándu öld,
þá var það flutt inn-yfir ána í Svínárnes. í Svínárnesi hefir oft verið
glatt á hjalla í fjallaferðum; þá (einu) nótt liggja allir fjallmennirnir
i sama tjaldstað. Þar hefir verið sungið mikið, farið í bændaglímu,
og reynt, hver gæti hent sig lengst, yfir lækinn. Svo, ef heyrðist nú
skvamp og einhver féll í lækinn, sem kom nú fyrir, þá var nú stundum
brosað. Austan-undir Harða-velli er Merarskeið (168), og smá-alda
austan-við það. Þórarinnsstaðir (169) eru á Krók norðvestan-við
Stangará (170), neðan-við Harða-vallar-klif. Á Þórarinsstöðum var
bær fyr á tímum, og fyrir nokkrum árum, er ég fór þar um síðast,
sást fyrir fjóshellunum; höfðu verið básar hvoru megin. Fyrir neðan
Þórarinsstaði er Heygil (171). Norður og vestur frá því er svæði
nokkurt, sem kallað er Bugur (172), út að Hvítá. Framan-við hann
eru Laugar (173), þar var bær, og Laugalækur (174), sem rennur um
Laugaþýfi (175). Þar nær Hvítá er Einislág (176). Skyggnir fremri (177)
er norðan við Stangará, þar sem hún fellur í Hvítá. Austan við
Skyggni, við Stangará, eru Mörþúfur (178). Þar suðaustur-frá er Hrauns-
heiði (179); neðsta bungan á henni heitir Djáknadys (180); sumir nefna
hana Dyngju (181); þar fyrir austan og ofan eru Búrfellsmýrar (182);
þar er oft mikið gras, stör og randólfur (brok), og sóttu Tungufells-
sóknarmenn stundum heyskap þangað, þegar engjar brugðust heima-
fyrir. Syðst á Búrfelli er Búrfellskista (183, þar er gren), og þar
suður-af koma Búðarárdrög (184); þar er Einbúi (185, fremri) á milli
kvísla. Það er Ölduhóll með vörðu á. Suðvestan-við hann er Blá-
kvíslar-upptök (187). Blákvísl (188) fellur i Búðará. Skammt þaðan
er Stóra-ver (189), vestan-undir Stóra-vers-öldu (3). Suðvestur-af
henni eru Melrakkatungur (190). Melrakkaá (191) fellur í Búðará. Þar
neðar er Búðarárfoss (192). Framan-við Stóra-ver eru Þrengslin (193).
Suðvestan-við þau er smá-alda, sem heitir Melrakki (194). Fyrir neðan
Búðarárfoss er Rofshólaver (195); þar innar við Stangará eru Rofs-
hólar (196); þar er sæluhús. í útsuður þaðan er Búðarártunga (197).
Áður fyr var þar bær, nefndur Búðarártungubakki (198). í Búðar-
tungunni (eins og hún er oftast nefnd) var lengi tjaldst ,ður, og
safnið haft fremst í tungunni, og að nokkru leyti hlaðið fyrir það.
Nú er þvi hætt. Vestan-á tungunni við Hvítá eru Hiútatorfur (199).
En austan-við tunguna eru Búðaráreyrar (200). En þar nokkru innar
með ánni eru Fjallmannavörður (201). Austan- og framan-við Búðará
(202) taka svo við búfjárhagar frá Hamarsholti.
Ég hefi nú leitast við að koma örnefnum á Hrunamannahrepps-