Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Page 11

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Page 11
AUÐUNN RAUÐI OG HÓLAKIRKJA 15 var hann rifinn og efnið notað. í Ferðctbók Sveins Pálssonar, bls. 130, segir, að kirkjugarðurinn um þessa fögru kirkju sé ógirtur. Virðist það geta gefið til kynna, að tínt hafi verið grjót úr honum í sambandi við kirkjusmiðina og notað til fyllingar. Steinkirkjan, -sem nú er, hefur orðið nokkuð dýr, þar sem hún meðal annars kostaði það, að múr frá miðöldum, önnur elzta bygg- ingaleifin á Hólum og nokkuð stæðileg eftir lýsingum 18. aldar, er látinn hverfa. Eini vottur þess, að menn hafi reynt á miðöldum að reisa grunnmúrað hús. Um múrinn sjálfan skal tekið fram, að hugsanlegt geti verið, að hann hafi myndað boga, apsis, í austur, en úr því er ekki hægt að skera, nema einhverjar sýnilegar minjar þess finnist. Ólíklegt er þetta atriði þó, þar sem grunnurinn að öllum líkindum er frá því um 1280 og því fremur mótaður af enskum áhrifum. Hins vegar er ljóst, að altarið, sem nú er í kirkjunni, stendur engan veginn á sínum upphaflega stað, sé það frá miðöldum. Til þess að skera úr um það, þarf mjög ítarlega rannsókn. Eitt er þegar tor- tryggilegt; það, að engin vígslumörk sjást á plötunni láréttu, er myndar borðið. 1 úttektinni 1763, Bps. B VIII 18, segir aðeins: „Al- teret opmuuret af Skiór Steen, udi bredden 2. alen 1. tom. udi Længden 2% alen, udi höyden 2 alen 4. tom. Postementet under alter Tavlen 19. tom. alteret overstryget med Röd Farve.“ Og 1765 segir: „Altarið uppmúrað af höggnum steini, sama slags og kirkjan er uppbyggð af.“ Hins vegar hlyti nýtt altari að hafa svipað breiddar- og hæðar- mál og hið forna háaltari Auðunar rauða, þar sem nota varð sömu skreytingar og til forna, þ. e. brík og fordúk. Nákvæm rannsókn á staðnum mundi sennilega leiða í ljós, að um nýtt altari sé að ræða, en ef til vill notaðir fornir steinar að einhverju leyti, sbr. Safn til sögu Islands V, nr. 6, bls. 296 áfr. Af rannsókn þessari og framsetningu staðreynda leiðir það, að mjög svo verði að efa, að framsetning Safns til sögu íslands V, nr. 6 sé rétt, þótt það að ýmsu öðru leyti sé merkt og gagnlegt rit. Meðal annars er ákaflega vafasamt, hvort bein Jóns biskups Arasonar og sona hans hafi fundizt — svo vafasamt, að hyggilegast er að álíta þau ófundin. Að endingu er mér skylt að þakka Árna Sveinssyni á Kálfsstöðum, sem fljótt og drengilega gerði nauðsynlegar mælingar á staðnum um hávetur til þess að gefa mér nákvæmar upplýsingar vegna fyrir-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.