Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Page 64
68
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hafa verið mjóar (0,5 mm) með stuttum burstkenndum hárum á mið-
tauginni og mjókkandi fram í þunna, hér um bil 100 mm langa, tennta
títu. Blómskipunarleggur axins hefur að meðaltali verið 2,4 mm lang-
ur milli liða, en verið 1 til 1.9 mm að breidd. Er það að vísu allt of
stutt fyrir erlent fjögurra hliða bygg, en breiddin bendir þó til þess,
að hér hafi verið um vanvaxið fjögurra hliða bygg að ræða. Af þeim
axbrotum, sem fundust, má auk þess sjá, að hliðarblóm samstæðn-
anna sín hvorum megin á axleggnum skara hvort annað, og bendir það
tvímælalaust til fjögurra hliða byggs. Að lokum má enn marka hið
sama af skeifulaga dæld neðst á ytri blómögn. Af öllum þessum ein-
kennum má telja öruggt, að hin kolaða byggtegund er Hordeum vul-
gare og þá af svipaðri gerð og undirtegund sú, sem kölluð er palli-
dum. Öxin hafa verið gisin og drúpandi, títur skertar og blómagnir
eðlilegar.
Netla (Urtica urens eöa dioeca).
Um 20 hlutar af öllu fræi brunasallans var óreglulega egglaga og
stundum jafnvel flatvaxið fræ, um 2.5 mm á lengd og yfir 1 mm á
breidd. Fræ þetta var raunar hnot með einum stíl og einrýmdu egg-
legi, og eftir stærð og lögun að dæma gat ekki verið um aðra jurt að
ræða en netlu. Áfast við sum hnotin voru leifar af bikarblöðum, sem
gáfu sama til kynna, og auk þess var í sallanum fjöldi smárra brenni-
hára af þeirri gerð, sem finnast á brenninetlu og tvíbýlisnetlu.
(H. intermedium). Til frekari greiningar má einnig taka tillit til lögunar axins
og lengdar milli liða blómskipunarleggsins. Og myndast við það 7 undirtegundir.
Síðan er unnt að halda áfram með skiptinguna, eftir því hvort blómagnirnar loða
við fræskurnina (kjarninn þakinn) eða eru lausar frá henni (kjarninn nakinn).
Hvernig lögun títanna er, hvernig litur blómagna, lögun aukaagna o. s. frv. Er
möguleiki fyrir því að setja þessa eiginleika saman á þúsundir vega, en í náttúr-
unnar ríki eru afbrigðin þó mun færri.
Er við lítum nú nánar á þá bygggerð, sem hefur öll þrjú blómin vel þroskuð
og kallast samnafninu polystichum, mynda blómin sex raðir eftir endilöngu ax-
inu. Þó geta stakstæð hliðarblóm skarað þannig hvert annað, að tvær hliðarraðir
líti út sem ein, og lítur axið þá út sem það væri fjórhliða. Er sexhliða bygg kallað
H. hexastichum, en fjórhliða H. vulgare (eða H. tetrastichum). Fleira greinir
milli þessara undirtegunda, svo sem það, að fjórhliða byggið hefur langt mjótt
og drúpandi ax, en hið sexhliða útstandandi og upprétt ax. Á erlendu fjórhliða
byggi er bilið milli axliða um 2.8 til 3.6 mm, en á sexhliða um 2.1 til 2.5 mm. Eins
og áður er að vikið, er síðan til fjöldi gerða af hvorri þessara undirtegunda.1)