Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Síða 66

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Síða 66
70 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS ið líklega allt óþreskt. Bendir axliðalengd og sverleiki til þess, að byggið sé ræktað við mun lakari kjör en á meginlandinu. Aðrar jurtaleifar, sem þarna fundust, styðja heldur þá skoðun að jurtirnar séu vaxnar úr íslenzkri jörð, svo sem fjöldi brennihára netlunnar, sem eflaust hefðu hrunið af og ekki orðið eins áberandi í þessari mylsnu, væri netlan aðflutt um langan veg. Er því engin ástæða til þess að ætla annað en jurtir þessar séu einmitt uppvaxnar þar á Bergþórshvoli, og sú skoðun reyndar í alla staði eðlilegust. Nú er fróðlegt að skoða byggið nánar og bera saman við bygg frá suðlægari ræktunarstöðum. Er þá rétt að minnast fáeinna atriða um útbreiðslu og ræktunarsögu byggsins. Hér skal þess fyrst getið, að mönnum hefur tekizt að kynnast út- breiðslu korntegunda og sögu ræktunar þeirra með því að beita ýms- um jurta- og fornfræðilegum rannsóknum. Rússinn Vavilov gat sér til, að unnt væri að finna hin upprunalegu heimkynni byggsins með því að rannsaka útbreiðslu hinna mismunandi afbrigða þess í heim- inum. Og væri upnruni þess sennilega þar, sem flest fyndist af frum- stæðum gerðum. Álíta sumir fræðimenn, að hinar ræktuðu byggteg- undir eigi einhvern einn sameiginlegan forföður, en aðrir telja, að þær beri að rekja til fleiri frumtegunda. Hefur verið reynt að leysa þá gátu með erfðarannsóknum, finna frumþætti ræktaða byggsins og þannig uppruna þess. Virðast menn til dæmis vera á eitt sáttir um það, að hið sexraða bygg sé frumstæðara en tveggjaraða bygg. Fornar myndir einkum á peningum gefa hugmvnd um ræktunar- sögu tegundarinnar, en skýrasta mynd af eðli hins forna byggs gefa hinar eiginlegu leifar jurtanna sjálfra, sem af einhverjum ástæðum hafa varðveitzt og haldið sinni lögun, einkum í koluðu ástandi eftir hægan bruna. Við þetta bætist enn ein rannsóknaraðferð, sem hefur varpað nýju Ijósi á sögu kornræktarinnar. Er það afsteypuaðferðin. Tókst dönskum vísindamönnum að gera afsteypur af ýmsu korni, sem myndað hafði för í leirker um leið og kerin voru steypt, einhvers staðar á óhreinum gólfum í híbýlum fornaldarmanna. Þannig hafa fundizt 425 afsteypur af fræi á dönskum kerum frá ýmsum tímum allt frá 2500 til 1500 f. Kr. Danirnir Jessen og Helbæk hafa haldið þessum rannsóknum áfram á Bretlandseyjum og ákvarðað mikið magn ýmissa korntegunda þar. Hefur safnazt mikill fróðleikur um ýmsar nytjajurtir, sem ræktaðar hafa verið á þeim slóðum á ýms- um tímum.3) Upphafleg heimkynni hins villta byggs mun vera einhvers staðar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.