Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Blaðsíða 94
98
ÁRBÖK FORNLEIFAFÉl .AGSINS
sennilegra, að myndinni hafi verið skipt í reiti líka hægra megin, og
í þá átt bendir einnig lóðrétta bandið, sem skilur sundur atriðin í
kvalastaðnum á fjölum 1 og 2.
4
Þá er að athuga stærð myndarinnar. Margt það sem höfundur segir
um það atriði tel ég rétt og skynsamlegt. T. d. hygg ég að hæð mynd-
arinnar, sem höfundur telur um 2,3 metra, sé mjög nærri lagi. Breidd-
in mun ekki heldur vera allfjarri lagi, en ekki hefur röksemdafærslan
heppnazt eins vel og að því er til hæðarinnar tekur. Ég held, að upp-
runalega myndin hafi áreiðaniega verið breiðari en höf. vill vera
láta. Fyrst er reiknað út, að myndin hafi að minnsta kosti verið 5,2 m
á breidd, en á heildarmyndinni 39, sem er í mælikvarðanum 1:10, er
hún aðeins sýnd 4,7 m breið, og er þetta nokkur galli. Síðar segir svo
höf., að dyr muni hafa komið í miðja myndina (og um það er ég höf.
sammála), og við það togni á myndinni sem svarar dyrabreidd eða
um 1 m. Þannig fær höf. breiddina a. m. k. 6,2 m, og svarar það
náttúrlega mjög illa til myndarinnar 39, sem aðeins sýnir 4,7 m. En
ég er sannfærður um, að hin upphaflega mynd hefur verið töluvert
breiðari en 6,2 m. Það er bersýnilegt, að dálítið þó vantar á vinstri
endana á fjölum 2 og 6 til að gefa rúm því sem vantar á myndirnar,
sem á f jölunum eru. Með því að áætla þá viðbót varlega, verður hægri
hluti myndarinnar að dyrum 3,10 m. Nú geri ég eins og höf. ráð
fyrir, að báðir hlutar hafi verið jafnbreiðir og dyrnar um það bil
1 m, og fæst þá heildarbreidd myndarinnar 7,2 m, enda veitir satt að
segja ekkert af því rúmi, sem þannig kemur fram, fyrir þær myndir,
sem hljóta að hafa verið á verkinu miðju, nefnilega Mikjál fyrir ofan
dyrnar og ofan við hann sjálfan miðpunkt alls, hið uppreidda hásæti,
etimasia, með Adam og Evu og varðenglum. Myndin hlýtur að hafa
verið a. m. k. 7,2 m á breidd. Þar við bætast svo a. m. k. 65 sm hvorum
megin, og heimtar þá myndin með auðum flötum báðum megin við
hvorki meira né minna en 8,5 m breiðan flöt. Þetta er lágmark, því
að það getur verið hrein hending, að einmitt 65 sm auðir eru varð-
veittir á fjöl 8, og fullt eins líklegt að auðu fletirnir hafi verið breið-
ari, en jafnvel þó að þeir hafi einmitt verið 65 sm og ekki meira, fæ
ég að 8,5 m breiddar verði að krefjast. Höf. bókarinnar nefnir fyrir
sitt leyti 7,5 m.
Höf. heldur því fram, að dómsdagsmyndin hafi upphaflega verið