Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Page 95

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Page 95
RÆÐA VIÐ DOKTORSPRÓF 16. JANÚAR 1960 99 á þverþili í fornum skála, og skal ég ekki mikið að því finna, að öðru leyti en því, að ég tel þau rök léttvæg, að láréttar þiljur bendi til þver- veggjar, en lóðréttar til langveggjar. Þetta er órökstutt, og yfirleitt er lítil byggingarsöguleg rannsókn í bókinni, enda má segja að það sé rannsóknarefni út af fyrir sig. Ekki hefði þó sakað að nefna, að þiljur þessar hafa verið gerðar með bolhústækni og eru jafnvel fyrir það eitt merkilegar. En sleppum því. Mér finnst eins og höf. allt benda til þess, að myndin hafi upphaflega verið á þverþili, en þá er- um við bæði komin í mikinn háska, sem mér finnst höfundur ekki gera sér nógu ljósan, því að ekki verður séð, að hún sé neitt smeyk við 7,5 m breitt þverþil í skála sínum, og ekki lætur hún þess getið, að nein eðlileg takmörk séu fyrir breidd húsa. En það er skemmst frá að segja, að 7,5 m er meiri skálabreidd en þekkist úr nokkurri heim- ild, þar með taldir allir uppgreftir (skálinn í Stöng er 5,5 m milli stafa og þykir breiður), og meira að segja einn sá almesti skáli, sem um getur í fornsögum, skálinn í Krossavík, sem var svo stór að hann fékk eiganda sínum viðurnefnis, húslangur, var ekki nema 7 metrar (14 álnir fornar). Skálinn með dómsdagsmyndinni hefur þurft að vera til muna stærri en þetta stórhýsi, og finnst mér höfundur hafa teflt hér á tæpt vað, og dýrleiki einhverrar jarðar á hundraðsvísu gefur ekki nema mjög óverulega bendingu um breidd húsanna þar. Þó verður að játa, að ekki eru fyrir hendi nógu miklar rannsóknir til þess að fullyrða megi, að fornir skálar hafi alls ekki getað verið 7,5 m breiðir. En nú hygg ég, að myndin hafi krafizt a. m. k. 8,5 metra breiddar eða 1 m meira en höf. ætlar. Hvað ef það væri nú rétt? Þá hefur skál- inn annaðhvort verið óvenju stór timburbygging eins og t. d. Trelle- borg-húsin í Danmörku, sem þó eru ekki nema 8 m breið um miðju og miklu mjórri til endanna, eða þessi mynd er ekki úr neinum skála, heldur timburkirkju og henni stórri. Á miðöldum voru kirkjur á báð- um þeim stöðum, sem um er að ræða, Bjarnastaðahlíð og Flatatungu, og nefnir höf. kirkjuna í Tungu, en ekki hina. Við vitum ekki mikið um þessar kirkjur, nema þær lögðust báðar af um siðaskipti. Ekki þurfa þær að hafa verið smáar, því að báðar jarðirnar voru meiri háttar, en bágt er að hugsa sér, að þar hafi getað verið svona risa- stór guðshús. Og bezt er að segja það vafningalaust, að við vitum fyrir víst um aðeins eitt hús á norðurlandi, sem rúmað gæti mynd af þessari stærð á þvervegg: dómkirkjuna á Hólum. Við vitum raunar ekki, hversu stórar venjulegar sóknarkirkjur voru. en við vitum með
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.