Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Side 100

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Side 100
104 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Ég hef lítið talað um þjóðsagnapersónuna Þórð hreðu, nefni það eitt að engin sönnun er fyrir því að útskurður hafi verið í þeim Flata- tunguskála, sem getið er um í Þórðar sögu, þó að hitt sé tekið fram, að hann hafi verið vel smíðaður og sterkur, endingargóður. Ekki skil ég hvernig höf. sér, að ritari sögunnar hafi ekki séð Flatatunguskál- ann. Mér þykir miklu líklegra, að hann hafi séð hann. 6 Ég mun nú senn ljúka máli mínu, þó að margt sé fleira, sem þess væri virði að um væri rætt. Má þar til dæmis nefna síðasta kafla bókarinnar, þar sem höfundur gerir tilraun til að sýna með hvaða hætti fyrirmynd dómsdagsmyndarinnar muni hafa borizt til íslands. Margt mætti um það segja, hvort höf. hefur tekizt að gera það senni- legt, að hinir ermsku biskupar eigi hér einhvern hlut að máli, en mér þykir því minni ástæða til að tala um þetta atriði, sem líkurnar eru minni til þess að nokkurn tíma verði úr því skorið. Ég lít á þennan kafla bókarinnar sem lauslega tilraun til þess að benda á einn þann farveg, sem fyrirmyndin kynni að hafa borizt eftir til íslands, og efast ekki um að höfundur veit sjálfur, hve mikið vantar hér á að hægt sé að færa sönnur á þetta mál og að margar aðrar leiðir og sam- bönd á 11. öld koma einnig til greina. Höf. hefði mátt segja þetta skýrari orðum, en það liggur hverjum manni í augum uppi, að hér er margra kosta völ, og ekki einsýnt, hvern taka skal. En það kemur enn fram í þessum síðasta kafla bókarinnar, sem er nokkurt einkenni á þessu verki í heild, að viðfangsefnið er lagt fyrir svo sem væri það einfaldara en það er. Höfundurinn er ekki tortrygginn eða mikið fyrir það gefinn að rengja sjálfan sig eða aðra í því skyni, ef verða mætti, að finna við það eitthvert nýtt sannleikskorn. Verkið hefði grætt á því sem vísindarit, ef höfundurinn hefði þreifað meira í kringum efnið, velt því á fleiri vegu og reynt að grandskoða fleiri hliðar. Hins vegar hefði það sízt orðið læsilegra og naumast eins áhrifamikið eins og það nú er, með þessari nokkuð einhæfu markvísi sinni. Ég hef verið nokkuð langorður og mest notað tíma minn til þess að benda á veilur í verki höfundar. Eins löngum tíma og meira til gæti ég varið til þess að segja frá því, sem ég er höfundi sammála um og það sem vel hefur tekizt. En sá tími væri illa notaður, og sjálfur hef ég þegar sýnt, hvers ég met kosti þessarar rannsóknar með því að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.