Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1960, Qupperneq 139
SKÝRSLA UM ÞJÖÐMINJASAFNIÐ 1959
143
kr. 1894.92. Gestabókin er góður gripur, sem Árnesingafélagið í
Reykjavík lét gera og afhenti Stöng að gjöf hinn 23. júní.
Fornleifavarzla í Reykholti. Alþingi hafði veitt 20 þús. krónur til
að gera að fornleifum í Reykholti, og fékk þjóðminjavörður þá pen-
inga í hendur, enda er hann formaður Reykholtsnefndar. Ákveðið
var að gera rækilega við Snorralaug, og hefur ekki teljandi verið við
hana gert síðan séra Vernharður Þorkelsson lét hlaða hana upp 1858.
Þorkell Grímsson safnvörður tók að sér verkið í Reykholti, og dvald-
ist hann þar 26. maí — 10. ágúst, og hafði þá lokið við að gera við
laugina og endurnýja yfirbyggingu yfir fremsta hluta ganganna sem
frá lauginni liggja. Nákvæm greinargerð um þetta allt kemur í Árbók
fornleifafélagsins 1960. Allt verkið í Reykholti kostaði kr. 25.339.76,
og borgaði safnið það sem fram yfir var þau 20 þús., sem til verksins
voru veittar.
Fornleifarannsóknir. Enginn meiri háttar uppgröftur var gerður
á þessu ári, og stafaði það meðal annars af því, að einn starfsmann-
anna var bundinn við viðgerð Snorralaugar svo til allt sumarið. Þjóð-
minjavörður rannsakaði fornt kuml á Ljótsstöðum, Hofshr., Skag.,
en Þorkell Grímsson gróf í svonefndan Kveldúlfshaug í Borgarnesi
og leitaði eftir kumlstæði, sem vegagerðarmenn urðu varir við í Dals-
mynni í S.-Þing. Ekkert af þessu var verulega merkilegt. Gísli Gests-
son fór eftirlits- og rannsóknarferð að útilegumannakofum í Snjó-
öldufjallgarði, en Þorkell fór undirbúningsferð til rannsókna í Þegj-
andadal í S.-Þing. Þjóðminjavörður og Gísli Gestsson fóru rann-
sóknarferð vestur á Rauðasand og rannsökuðu þar merkilegar akur-
girðingar á Melanesi.
ErlencLir fræðimenn. Þrír erlendir fræðimenn dvöldust á vegum
safnsins á árinu. Anne Marie Franzén frá Statens historiska muse-
um var hér frá 19. maí til 18. júní við rannsókn miðaldaútsaums.
Hún sýndi safninu þá vinsemd að bjóðast til að gera við útsaumað
altarisklæði frá Höfða (Þjms. 10886) á vísindalegan hátt í verkstofu
safns síns í Stokkhólmi. Var það sent utan, og er nú fullviðgert, en
var ekki komið heim um áramót. Fil. dr. Alfa Olsson frá Göteborgs
museum var hér 11. sept. til 2. okt. Hún leggur stund á rannsókn
matargerðar fyrr á tíð. Báðar þessar vísindakonur fengu allan að-
gang að safninu, vinnuherbergi og alla fyrirgreiðslu um ferðalög og
annað. Enn kom hér fornminjafræðingurinn Jonathan Gell frá
Bandaríkjunum og var frá 1. til 7. júní. Vann hann m. a. nokkra
daga með Þorkeli Grímssyni í Reykholti.