Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1989, Síða 180
184
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Hið merkilega filmusafn J. Throups, sem kom 1949, var kopíerað og
einnig skyggnusafn frá Ragnhild Bondevik, sem kom árið 1988.
Þá skráði Páll Björnsson á Fagurhólsmýri og skyldfólk hans
skýringar við þann hluta myndasafns Helga Arasonar, sem búið var að
kopíera.
íslenzkir aðalverktakar og Hafnarfjarðarbær veittu safninu fjárstyrk til
að skrá safn Guðbjarts Ásgeirssonar, sem Ágúst Georgsson vann að
rúma tvo mánuði undir árslok.
Rannver Hannesson forvörður vann að hreinsun og lagfæringum
platna og mynda í 5 vikur um sumarið og lauk við að yfirfara plötusafn
Guðbjarts Ásgeirssonar og safn Nicoline Weywadt og Hansínu Eiríks-
dóttur á Teigarhorni. Þá hreinsaði hann og bjó um allmargar prent-
myndir, allt fyrir fé úr þjóðhátíðarsjóði.
Margrét Ingólfsdóttir forvörður lagfærði og gekk frá til geymslu 12
gömlum rauðkrítarmyndum og teikningum eftir Sæmund Hólm, Þor-
stein Guðmundsson og Sigurð Guðmundsson og eru frummyndir þess-
ara listamanna nú komnar í gott horf.
Lánaðar voru út um 900 myndir og plötur, ýmist til birtingar í ritum
eða eftirtöku. Lánagjald rennur síðan til að kosta kopíeringu ljósmynda-
safnanna.
Textíl- og búningadeild — Keypt var smásjá til rannsóknar á textílum og
aðbúnaður deildarinnar aukinn og bættur með lítils háttar tækjabúnaði
og auknu húsrými. Að venju flutti deildarstjóri ýmis erindi, veitti leið-
beiningar og ráðgjöf víða og vann jafnframt að samningu yfirlitsgreinar
um íslenzka textíliðju.
Deildarstjóri sótti norrænan fundum þjóðbúninga í Valdres í Noregi
7. —11. ágúst og flutti þar erindi um höfuðbúnaði.
Þá sat deildarstjóri 13. þing CIETA, alþjóðasambands textílfræðinga
í Chicago í Bandaríkjunum 2.-6. október og stjórnarfund Norræna
búsýsluháskólans í Kaupmannahöfn 28.-29. september.
í sambandi við fyrrgreindar ferðir skoðaði deildarstjóri söfn og stofn-
anir, sem vinna á þessu sviði, bæði í Noregi og eins vestan hafs.
Bókasafn. — Haldið var áfram að endurskipuleggja, flokka og skrá
allar erlendar bækur svo og íslenzk tímarit og þeim konrið fyrir í
öskjum. Þá er unnið að endurskipulagningu ritaskipta og reynt að
koma á aftur tengslum við gamla skiptafélaga svo og að fylla í eyður í
ritröðum, sem myndazt höfðu á undanfornum árum.
Ritauki var á árinu 308 bækur og er sérstaklega vert að geta afmælis-
bókagjafar frá Vöku—Helgafelli, samtals 84 bindi, svo og bókagjafar frá