Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1989, Blaðsíða 195
AÐALFUNDUR 1989
199
Þcssu næst skýrði Inga Lára Baldvinsdóttir, ritstjóri Árbókar, frá cfni næstu Árbókar.
Þessu næst las gjaldkeri, Mjöll Snæsdóttir, rcikninga fólagsins.
Því næst fór fram stjórnarkjör. Fráfarandi stjórn gaf kost á scr til cndurkjörs, cn hana
skipuðu: Hörður Ágústsson formaður, Þórhallur Vilmundarson skrifari, Mjöll Snæsdóttir
gjaldkcri, Þór Magnússon varaformaður, Guðmundur Ólafsson varaskrifari og Elsa E.
Guðjónsson varagjaldkeri. í fulltrúaráði sitja áfram Gils Guðmundsson, Halldór J. Jónsson
og Hjörleifur Stefánsson. Kjósa skal í sæti Lilju Árnadóttur, Sturlu Friðrikssonar og
Þórðar Tómassonar. Endurskoðendur Höskuldur Jónsson og Páll Líndal. Öll stjórnin og
fulltrúaráð var endurkjörin með lófataki.
Þá gat formaður þcss, að stjórnin hefði samþykkt að skipa stjórn til að endurskoða lög
félagsins, sem nú eru orðin 70 ára gömul, og hefði tilnefnt þá Gunnlaug Haraldsson,
Kristinn Magnússon og Frosta Jóhannsson til að eiga sæti í nefndinni. Spurði hann, hvort
fundurinn hcfði eitthvað við það að athuga, og var svo ckki.
Loks sagði varaformaður, að stjórnin hefði tilncfnt Árna Björnsson, Hörð Ágústsson
og Sveinbjörn Rafnsson til að taka sæti í ritncfnd og lýsti cftir athugasemdum fundar-
manna við þá tilnefningu, og komu cngar fram.
Þá var orðið gefið frjálst til að ræða um önnur mál.
Jón Steffensen mælti með því, að hver einstakur aðili, sem fengist við fornlcifarann-
sóknir, fengi sérstaka fjárveitingu, en ekki væri öllum vísað á eina allsherjarfjárveitingu.
Af tilefni afmælisins bauð varaformaður gestum þessu næst að þiggja kaffiveitingar,
áður en hlýtt yrði á fyrirlestur kvöldsins.
Að því loknu flutti Margrét Hcrmanns-Auðardóttir, erindi sem hún nefndi Upphaf
byggðar á íslandi í ljósi Herjólfsdalsrannsókna. Niðurstaða hennar cr sú, að byggð í Her-
jólfsdal á Heimaey sé eldri en talið hcfur verið, cða frá 7. öld elzt. Fundarmenn þökkuðu
erindið mcð lófataki.
Að því loknu báru fundarmenn fram fyrirspurnir og gcrðu athugasemdir við crindið.
Til máls tóku Þór Magnússon, Guðmundur Ólafsson, Sturla Friðriksson, Kolbcinn Þor-
leifsson, Margrét Hallsdóttir og Guðrún Larsen, cn fyrirlesari svaraði.
Flcira gerðist ekki. Fundi slitið kl. 23.41.