Lögrétta - 01.01.1936, Page 4

Lögrétta - 01.01.1936, Page 4
11 LÖGRJETTA 12 Benedikt Sveinsson hafði enn haldið fram gamla endurskoðunarfrumvarpinu óbreyttu. Hann taldi að með hinni aðferðinni sýndi þingið hik í baráttunni og staðfestuleysi í kröfum sínum um þau landsrjettindi, sem gamla frumvarpið hjeldi fram. Hinir töldu það óhyggilegt þrálæti, að samþykkja hvað eftir annað kröfur, sem menn vissu fyrir fram, að ekki næðu samþykki hins máls- aðilans, og yrðu því árangurslausar, í stað þess að reyna nýjar leiðir til samkomulags. Margir þingmenn höfðu fylgt Benedikt að málum og viljað samþykkja gamla frum- varpið enn á ný. En hinir urðu þó fleiri, sem vildu reyna aðra leið í þetta sinn. Flestir konungkjörnu þingmennirnir, sem áður höfðu greitt atkvæði móti frumvarpi Bene- dikts, höfðu nú gengið í sveit þeirra, sem hjeldu fram nýju leiðinni, og tjáð sig sam- mála þeim atriðum, sem fram voru tekin í þingsálvktuninni, svo að hún hafði náð yfir- gnæfandi meirihluta í efri deild og nokkr- um meirihluta í neðri deild. Landshöfðingi hafði einnig látið uppi, að hann væri þings- álvktuninni velviljaður, og meðal blaðanna veitti Isafold henni fylgi. Þetta er aðdragandinn að því, sem gerðist á þinginu 1897. Þá hófst ný stefna í sjálfstæðismálinu og stóðu um hana ákafar og oft heiptúðugar deilur næstu sex árin. Forvígismaður þeirr- ar stefnu var dr. Valtýr Guðmundsson, þá þingmaður Vestmannaeyja. Hann hafði fyrst átt sæti á þingi 1894. Á þinginu 1895 hafði hann verið í hópi þingsályktunarmanna. Hann var búsettur í Kaupmannahöfn og danskur embættismaður, docent í íslenzkum fræðum við háskólann. Og hvort sem það var nú af því, að honum hafi verið falið það af skoðunarbræðrum hans á alþingi, eða hann r jeðst í það af eigin hvötum, þá tók hann að túlka sjálfstæðismál íslendinga fyrir dönsku stjórninni og setja henni fyrir sjónir, hve óhæfilegt það væri, ef hún ætlaði til lengdar að svara kröfum íslendinga um stiórnarfarsbætur með bláköldu nei-i. Á þingunum næst á undan hafði járn- brautarmálið vakið mesta athygli. Það kom fram á þinginu 1894. Hugmyndin um jám- brautalagningar hjer um land var vakin af Sigtryggi Jónassyni frá Winnipeg, Eyfirðingi, sem mikið hafði látið til sín taka í nýbyggj- aralífi íslendinga vestan hafs, en 1894 dvaldi hann um hríð hjer heima. Dr. Valtýr var einn af forgangsmönnum þessa máls, og eftir því skírði hann tímarit, sem hann um þetta leyti stofnaði í Kaupmannahöfn og kallaði „Eimreiðina". Þóttu fylgismenn járnbrautar- málsins allmiklir loftkastalamenn á þeim ár- um, eins og fram kemur í vísu Björns rektors Olsens: Valtýr Eimreið fer um Frón, flýgur Jens á loftballón o. s. frv. en það er Jens prófastur Pálsson í Görð- um á Álftanesi, sem jafnan var einn hinn mesti áhugamaður um samgöngubætur. A jólunum 1894 hafði dr. Valtýr fjölment boð heima hjá sjer í Kaupmannahöfn og flutti þar langa ræðu um skoðanir sínar á helstu framfaramálum Islendinga. Hann sagði, að allir mundu álíta, að samgöngu- málin væru sjer ríkust í huga. En sú breyt- ing væri nú á orðin, að stjórnarskrármálið væri nú mesta áhugamál sitt. Hann lýsti svo viðhorfi þess og hvað það væri, sem sjer fyndist brýnust þörf á að breytt yrði. Þykir mjer ekki ólíklegt, að hann hafi átt mikinn þátt í því, að breytt var til um sóknarað- ferð í málinu á þingi 1895, eins og fyr er sagt. Eftir þinglok 1895, þegar dr. Valtýr var kominn heim til Kaupmannahafnar, var fundur haldinn í lögfræðingasamkundu Dana, Juridisk Samfund í Kaupmannahöfn, 6. nóv- ember, og þar tekin til umræðu landsrjett- indi Islands og stjórnmálabarátta. Var þetta án efa gert að undirlagi dr. Valtýs, og flutti hann þar fyrirlestur um málið. Þessi fyrir- lestur er prentaður í II. árg. Eimreiðarinn- ar, 1896, og koma þar fram þær skoðanir á sjálfstæðismálum Islendinga, sem dr. Val- týr hjelt síðan fast fram. öllum Islending- um í Kaupmannahöfn var boðið á fundinn og einnig mörgum Dönum, þingmönnum og fleirum, sem einhver afskifti höfðu haft af málum íslands. Ráðherra Islands kom þó ekki á fundinn, en í hans stað kom þar for- stjóri íslenzku stjórnardeildarinnar, A Dyb- dal. Var hann þarna helsti og reyndar ein-

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.