Lögrétta - 01.01.1936, Page 26

Lögrétta - 01.01.1936, Page 26
55 LÖGRJETTA 56 og sviksemi hinna íslenzku við málstað sinn, fjasið um innlimun o. s. frv. keyrði fram úr öllu hófi fyrir þessar kosningar. Jeg get ekki sagt það með neinni vissu, hvernig almenningur hafi litið á málið meðan á baráttunni stóð. Þó heyrðist mjer það á mörgum eftir á, að þeir hefðu ætlast til að frumvarpinu yrði eitthvað breytt með sam- komulagi, en ekki hins, að því yrði með öllu kastað fyrir borð. Forsprakkarnir í and- stöðunni gegn frumvarpinu vildu fyrir hvern mun fella Hannes Hafstein. Það var öllum Ijóst. Ýmsir af þeim munu hafa hugsað sem svo, að ívilnanir þær, sem Danir höfðu nú boðið, gætu þeir ekki aftur tekið, en að teygja mætti þá lengra með fastari átökum. En án efa vakti skilnaðarhugsunin fyrir mörgum, sem atkvæði greiddu gegn frum- varpinu. Það hafði komið fram í nefndar- umræðunum, að Danir töldu hreint persónu- samband, án nokkurra sameiginlegra mála, sama sem skilnað, og jafnvel óaðgengilegra fyrir sig en fullan skilnað, og það hafði líka komið fram, þótt aðeins væri í munnlegu viðtali, að þeir mundu ekki beita Islendinga hemaði, þótt þeir heimtuðu skilnað. íslend- ingar vestan hafs risu upp gegn frumvarp- inu, hjeldu víða fjölmenna fundi og sam- þyktu alstaðar skilnað frá Danmörku. Jeg ætla að taka hjer upp kafla úr grein í Lögrjettu, nokkru fyrir kosningarnar, sem fjallar um þessi atriði málsins. Það er opin- bert, segir þar, að þeir, sem mest berjast móti sambandsmálinu, eru skilnaðarmenn. . . Þeir ætla eftir á að spana þjóðina upp til þess, að heimta fullan skilnað. Þá verður látið klingja: Þetta ástand er óþolandi. Við erum með stöðulögum og stjórnarskrá, ríkis- ráðssetu og undirskrift stjórnarforsetans danska innlimaðir í Danmörku. Okkur er haldið í hnappheldu. Danir vilja ekki sam- þvkkja lögin eins og við viljum hafa þau, svo að ekkert er annað að gera en að heimta skilnað. En heigulskapurinn er þó svo mikill, að það er varla nema Ingólfur einn, sem skýrt kveður upp úr með það, að skilnaður sje eina og æskilegasta ráðið. Isafold þorir ekki að segja það hreinskilnislega, en stikl- ar í kringum það eins og köttur í kringum heitan graut, af því hún veit, að þjóðin vill ekki skilnað, þótt hann stæði okkur opinn. . . . Það er bersýnilegur og ómetanlegur hagur fyrir Island að vera í fjelagi með Dönum um viss mál, þar sem við þurfum engum eyri til þeirra að kosta nema við sjálfir viljum. Hugsum okkur nú, að við hefðum enn átt að búa við stöðulögin frá 1871 og stjórn- arskrána frá 1874; Danir hefðu neitað öll- um breytingum og skilnaði sömuleiðis. Þá er hætt við, að þeir, sem feldu frumvarpið frá 1908, hefðu fengið harða dóma. En rás við- burðanna varð sú, að fall frumvarpsins flýtti fyrir lausn sambandsmálsins og því geta nú frumvarpsandstæðingar þrátt fyrir alt litið ánægðir yfir framkomu sína 1908. En ekki vissu þeir og gátu engar hugmyndir haft um það 1908 og 1909, að eftir 5 ár kæmi upp heimsstyrjöld, sem kollvarpaði ríkjaskipun Norðurálfunnar og gerbreytti öllum hugsunarhætti manna og skoðunum, sem rótgrónar voru í heiminum þegar sam- banslaganefndin gamla sat á rökstólum. En það var þetta, sem leiddi til þess, að við fengum fullveldisviðurkenninguna 1918. Frumvarpsmennirnir biðu, eins og alkunn- ugt er, algerðan ósigur í kosningunum 1908. Hjer í Reykjavík voru þeir kosnir dr. Jón Þorkelsson landskjalavörður og Magnús Blöndahl kaupmaður með liðlega 100 atkv. fram yfir þá Guðmund Björnson og Jón Þorláksson. I Borgarfirði feldi Kristján Jóns- son dómstjóri sjera Þórhall Bjarnarson lector. 1 Mýrasýslu feldi Jón á Haukagili Jóhann Eyjólfsson. I Snæfellsnessýslu feldi sjera Sigurður Gunnarsson Lárus H. Bjarnason. I Dalasýslu feldi Bjarni frá Vogi sinn gamla flokksforingja Jón Jensson. Bjöm Jónsson var kosinn í Barðastrandasýslu og sjera Kristinn Daníelsson í Vestur-Isaf jarðarsýslu, en frumvarpsmenn fjellu í báðum þeim sýslum. I Strandasýslu feldi Ari ritstjóri Jónsson Arnalds Guðjón Guðlaugsson. Stefán skólameistari fjell í Skagafirði. Á Akureyri feldi Sigurður Hjörleifsson Magnús Krist- jánsson. Benedikt Sveinsson ritstjóri feldi frumvarpsmann í Norður-Þingeyjarsýslu og Jón á Hvanná annan í Norður-Múlasýslu. Þorleifur í Hólum feldi Guðlaug sýslumann Guðmundsson í Austur-Skaftafellssýslu og

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.