Lögrétta - 01.01.1936, Page 53

Lögrétta - 01.01.1936, Page 53
109 LÖGRJETTA 110 Jeg ætla að taka hjer upp nokkur atriði úr brjefum Jóns Magnússonar til trúnaðar- manna hans í Danmörku frá því, er hann kom heim frá Kaupmannahöfn og til þess, er danska samninganefndin kom hingað. Hann leggur til, að einn maður sje sendur, en segist vera hræddur við nefnd. Samningar muni ekki takast nema hreint persónusam- band sje viðurkent. Þetta getur ekki komið Dönum á óvart, segir hann, því að þetta er í rauninni grundvöllur íslenzku nefndarmann- anna frá 1908, og jeg hef oftar en einu sinni skýrt konungi og Krieger frá þessu, og sömuleiðis Zahle og fleirum dönskum ráð- herrum. Jeg veit vel, að Danir segjast ekki ganga að þessu. En jeg hygg, að meiri hluti þingmanna og máske allir muni, að viður- kendu hreinu persónusambandi, tilleiðanlegir til þess, að hafa einhver mál sameiginleg með Dönum, t. d. utanríkismál að einhverju leyti, en með uppsagnarfresti, eða máske meðan um semur. Það þýðir víst ekki til þess að hugsa, að íslendingar vilji fallast á jafnrjetti íslendinga og Dana í hvoru landanna um sig. Hitt má vera, að samningar gætu orðið um það, að Færeyingar hefðu með einhverjum kjörum fiskiveiðarjett hjer fram yfir aðrar þjóðir. Sameiginlegt ríkisráð finst mjer að ekki geti verið um að ræða. Mjer er líka óskiljanlegt, hvers vegna Danir vilja halda í það, því þeir vita og geta vitað á annan hátt, hvað gerist í stjórn íslands, svo lengi sem sami er konungur og sama kabinet. Jeg og margir fleiri bera kvíðboga fyrir því, að vandræði hljótist af, ef samningar verða reyndir og ekki verður samkomulag. En til- raun til samninga hef jeg talið sjálfsagða áður en fána-frumvarp þingsins væri sam- þykt, því að væri því neitað staðfestingar, þykist jeg sjá fram á, að það leiddi óviðráð- anlega til skilnaðar, í rauninni, að því er jeg hygg, móti vilja alls þorra þjóðarinnar. Jeg er að vona, að það bregðist ekki, að maður eða menn komi hingað innan miðs júní. I brjefi til konungs segir Jón Magnússon, þegar frjett kom hingað um það, að ríkis- þingið hefði samþykt upptöku sambands- málsins, að hjer sjeu menn alment mjög ánægðir yfir þsssu og geri sjer góðar vonir. Það er líka mín skoðun, segir hann, að mjög skynsamlegt sje að gera tilraunina, og gera hana einmitt nú. En erfiðieikarnir sjeu miklir, þar sem krafa íslendinga sje hreint persónu- samband, en frá Dana hlið sje því alment haldið fram, að þeir geti ekki gengið að því. Hjer sje reyndar um formsatriði að ræða, en formsatriði sjeu oft erfið viðfangs. En hvernig sem þetta fari, segist Jón Magnús- son vera þeirrar skoðunar, að valin hafi verið rjetta leiðin, eins og hans hátign konung- urinn hafi haldið fram. I Danmörku hafði málið tafist vegna þingrofs og nýrra kosninga. Ríkisþingið kom ekki saman fyr en 28. maí. 1. júní hóf Zahle umræður um mál íslands í ríkisþinginu; sagði, að breyttir hagir hjer á landi hefðu orðið þess valdandi, að hvað eftir annað hefði stjórnin orðið að taka afstöðu Islands í rík- inu til meðferðar og væri brýn nauðsyn að taka breytingar á sambandi landanna til meðferðar. Nefndir voru kosnar í báðum þingum og var Borgbjerg framsögumaður í fólksþinginu, en Kragh í landsþinginu. Hægri- menn skárust úr leik og vildu engan þátt eiga í afgreiðslu málsins. Lögðu þeir sjer- staklega áherzlu á, að fáninn yrði sameigin- legur og að Island yrði ekki konungsríki út af fyrir sig. Tillögur meiri hluta nefndanna um upptöku sambandsmálsins og sendingu samninganefndar til Reykjavíkur voru sam- þyktar í fólksþinginu með 102 : 19 atkv. og í landsþinginu með 46 : 15. — 1 nefndina voru valdir fjórir menn: Chr. Hage fyrir stjórn- arinnar hönd, og svo sinn maður úr hverj- um stjórnmálaflokki, sem styðja vildi málið: Borgbjerg frá Jafnaðarmannaflokknum, I. C. Chirstensen frá flokki vinstri manna og prófessor Arup frá radikala flokknum. Samninganefndin kom hingað 29. júní. Hafði alþingi þá kosið f jóra menn í samninganefnd- ina af sinni hálfu, sinn úr hverjum flokki þingsins: Jóhannes Jóhannesson, forseta sameinaðs þings, úr heimastjórnarflokknum, Bjarna frá Vogi úr sjálfstæðisflokknum, Einar Arnórsson úr langsummannaflokknum og Þorstein M. Jónsson úr framsóknarflokkn- um. Gekk nefndarstarfið svo hljóðlega, að litlar fregnii' bárust út af því. Islenzku nefndar-

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.