Lögrétta - 01.01.1936, Síða 80

Lögrétta - 01.01.1936, Síða 80
163 LÖGRJETTA 164 að þeirra tilfinninga, sem þróast í skauti trúarinnar, þá er það líka slæmt. Það er vítavert að vanrækja það, að leggja rækt við sjálfan sig og sitt eigið sjereðli, og það er háskalegt, að rækta sjálfan sig og sjer- eðli sitt á kostnað samlífsins við aðra. Því að lífið er í insta eðli sínu samlíf, og það er ennfremur í insta eðli sínu það samlíf, sem að því stefnir, að gera ástina eða kær- leikann að veruleika tilverunnar. Þessi lífsskoðun og söguskoðun Ortega er á ýmsan hátt í andstöðu við skoðanir 19. aldarmnar alment og á öndverðum meið við þær skoðanir, sem iangt fram á þessa öid voru ráðandi á Spáni, eins og víðar. Þess vegna snerist Ortega einmg á móti konung- dæminu og skipulagi þess, og stofnaði, ásamt fieirum, fjelagsskap, sem hjet: „I þjónustu lýðveldisins“, og á þá sveif hölluðust með honum margir hinir bestu meðal ungra rit- höfunda og mentamanna á Spáni. Þessar heimspekilegu skoðanir, sem jeg nú hef lýst, og trúin á framkvæmdamöguleika þeirra í lýðræði og lýðveldi var þess vegna lífsskoðun þess nýja Spánar, sem braust út út um og eftir 1930. Þessar nýju skoðanir komu mest fram í lýðveldissambandi Ortega og fjelaga hans og í klúbbi mentamanna og ennfremur nokkuð í hernum, þannig að nokkur hluti hans gerði mishepnaða upp- reisn og lýsti yfir lýðveldi. En fyrstu píslar- vottar hinnar nýju frelsishreyfingar urðu þannig hermenn og herforingjar, sem mjög var á lofti haldið. Hin nýja lýðveldishreyfing var ekki heldur í fyrstu að öllu leyti í and- stöðu við kirkjuna — Zamora var t. d. í senn lýðveldissinni og trúaður kaþólskur kirkjusinni. Þannig var að skapast í landinu ný spænsk stefna a grundvelli kenninga, sem Ortega boðaði og rithöfundafjelagar hans, þjóðleg spænsk lýðveldisstefna, íhaldssöm um sumt, en frjálslynd eða í jafnaðarmenskuátt í ýms- um þjóðfjelagsmálum, svo sem um nýja skiftingu á jarðeignum stóreignamanna, aðals og kirkju, og var það samskonar stefna og fascistar hjeldu fram í Italíu, nazistar í Þýskalandi, og Lloyd George í Englandi. En um leið og þessar nýju stefnur fengu því áorkað á Spáni, að einræðið hvarf, opn- aðist leiðin fyrir nýjum, erlendum stefnum og sjerstaklega sótti kommúnisminn á. Af þessu varð nýr glundroði, sá sem náð hefur hámarki sínu í því blóðbaði, sem nú geisar á Spáni. Öflin, sem berjast, eru mörg og and- stæð og samvinna þeirra, er fylgjast að, óviss og kvikul. Þar er gamalt, rótgróið kirkjuvald og aðalsvald, sem hvorutveggja fór oft illa með ítök sín og varð oft fyrir miklum áföllum, þar er borgaraleg og þjóðleg um- bótastefna á lýðræðisgrundvelli, þar er þjóð- emisleg jafnaðarstefna, í þýskum og ítölsk- um og kannske ekki síst portúgölskum anda og þar er alþjóðleg andborgaraleg og and- kirkjuleg sameignarstefna, sem berst fyrir alræði öreiganna. Það er ekki unt að spá neinu um það, hvað úr verður, eða hvað við tekur, en minna má á það, sem Cicero hefur fyrir löngu sagt í einu brjefi sínu, ,,að allar borgara- styrjaldir eru fullar af óteljandi ógnum, en þó er sigurinn kvíðvænlegri en alt annað, hvorumegin sem hann verður, því að sigur- vegarinn verður oft að láta undan óbilgjörn- um eða heiftræknum kröfum þeirra, sem studdu hann til sigursins." Því andi sigurs- ins er ofmetnaður. En þjóðirnar þurfa og þrá frið. Hlutverk Norðurlanda. Alit Cecil Iávarðar. Cecil lávarður er einn þektasti og merk- asti stjórnmálamaður Breta. Hann er þriðji sonur Salisbury lávarðar og fyrrum forsætis- ráðherra, og er nú rúmlega sjötugur. Hann hefur mjög látið til sín taka friðarmál og verið frá upphafi mikill stuðningsmaður Þjóðabandalagsins. Hann skrifaði nýlega fyr- ir árbók norræna f jelagsins álit sitt á stöðu Norðurlanda í stjórnmálum heimsins og á hlutverki þeirra þar, og fer það hjer á eftir: Jeg er spurður þess, hver sje staða nor- rænna þjóða í samfjelagi þjóðanna? Það er margþætt spurning, sem jeg geri ekki ráð fyrir, að jeg geti svarað fullnægjandi. En eitt get jeg öruggur sagt. Norrænar þjóðir hafa altaf haft mikil áhrif í heiminum. Stundum er þetta mikilmennum að þakka,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.