Lögrétta - 01.01.1936, Síða 83

Lögrétta - 01.01.1936, Síða 83
169 LÖGRJETTA 170 r Leiðangur Frakka til Islands fvrir hundrað árum. Enir vnhjáim u. ouiason Menn þreytast aldrei á því að tala um þær miklu breytingar og framfarir, sem örðið hafi hjer á landi á síðustu mannsöldrum, éins og rjett er í margan máta, þó að sumt af þessu virðist hafa orðið þjóðinni um efni fram, eða hafa stigið henni til hofuðs. Raun- verulegt gildi eða gildisleysi margra breyt- inganna geta menn sjeð þar sem hægt er að bera núverandi ástand rjettilega saman við það, sem áður var. Það vill nú svo til, að í ár eru liðin rjett 100 ár síðan farinn var einn hinn stærsti rannsóknarleiðangur, sem farinn hefur verið um þetta land, hinn franski leiðangur Gaimards. Upp úr þessum franska leiðangri urðu til stórar ferðabækur um Is- land og stærsta og að ýmsu leyti fallegasta myndasafn, sem til er hjeðan. Það er annars af þessum gamla franska leiðangri að segja, að það var eiginlega slysa- leg tilviljun, sem fyrst beindi athygli frans- mannanna hingað, til rannsókna, þó að lengi hefðu franskir sjómenn verið hjer að veið- um. Franskir sjóliðsforingjar höfðu farist í rannsóknarferð til Grænlands og franska stjórnin gerði út leit að þeim og í þeirri ferð tók þátt læknirinn Joseph Gaimard. Þannig kom hann fyrst til íslands og áhugi hans á íslenzkum málum vaknaði. Helsti f jelagi hans hjet Robert og komu þeir hingað fyrst 1835 á skipinu ,,la Recherche“, undir stjórn Tré- houart, sem seinna varð þektur aðmíráll. Þeir f jelagar ferðuðust þá um sumarið á hestum um Borgarfjörð, Snæfellsnes og norður í Hrútafjörð og svo austur til Þingvalla, Geys- is og Heklu, ofan á Eyrarbakka, um Krísu- vík, Keflavík og Hafnarfjörð og aftur til Reykjavíkur. Þessi ferð þeirra þótti svo merkileg þegar heim til Frakklands kom, að Gaimard, sem var duglegur maður og fylginn sjer en ekki fræðimaður að sama skapi, fekk fje til nýrrar og stórrar Tslandsferðar, árið 1836 og tóku þátt í henni ýmsir góðir fræði- menn og vel kunnur franskur málari, Auguste Mayer, sem seinna gerði flestar myndir í ferðabókina. Þá var með í ferðinni rithof- undurinn Xavier Marmier, sém seinna skrif- aði um ferðina svonefnd brjef um Island (Lettres sUr l’Islande), en úr þeim og úr lýs- ingum Roberts frá fyrri ferðinni er flest af því, sem hjer verður týnt til. Myndir ferðabókanna éru að vísu oft færð- ar í stílinn, sjerstaklegá fjallamyndir og náttúrufyrirbrigða og þó ekki eihs mikið óg stundum hefur vérið af látið, því að þetta kemur helst fram þar sém t. d. f jöll erU nöt- uð í baksýn einhvérs annars, sem aðalíega er verið að sýna. En hvað um það, mynd- irnar eru í heild sinni fallegar og merkilegar og það er margt í ferðasögunum líka, þó að ekki yrði úr ferðabókinni það, sém ætla hefði mátt. Jeg kann annars ekki að dæma um náttúrufræðilegan árangur ferðanna, það eru þjóðlífs- og menningarlýsingarnar, sem jeg hef haft mest gaman af og vildi benda á ög í þeim er margt fróðlegt, þó að ekki sje það alt Islendingum til lofs og dýrðar. Þefta eru lýsingar og ijettar frásagnir um hvað eina, sem þeir Robert og Marmier hafa rekið augun í á ferðum sínum, rabb um daginn og veg- inn, fremur en vísindalegar athuganir, sumt kannske misskilið, en margt líka sjeð af hinu glögga gestsauga. Þessar frásagnir og myndir vöktu fljótt og víða athygli, meðal fræðimanna og fróðleiks- fúsra lesenda, t. d. mun Jules Verne hafa fengið úr þeim efnivið. Á Islandi þótti ferð- in að sjálfsögðu merkileg og Gaimard var hjer vel látinn, hann var sagður vingjarn- legur og alþýðlegur maður og þar að auki var hann í einkennisbúningi, en fallegir ein- kennisbúningar hafa fram á þennan dag góð áhrif, einkum á kvenfólk. Þegar Gaimard kom seinna til Hafnar hjeldu landar honum veislu og úr þeirri veislu stafar hið alkunna kvæði Jónasar ,,Þú stóðst á tindi Heklu hám.“ Ef lýsa ætti í fáum orðum því, sem Frökk- um þótti fyrir 100 árum eftirtektarverðast
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.