Lögrétta - 01.01.1936, Side 91

Lögrétta - 01.01.1936, Side 91
185 LÖGRJETTA 186 erfiljóð, og er þar margt, sem ekki er í eldri ljóðasöfnum; 6. Huggunarljóð; 7. Veizlu- kvæði, ávörp og brúðkaupskvæði; 8. Kvæði úr leiðsritum; 9. Grettisljóð; 10. Gaman- kvæði, ljóðabrjef og barnakvæði, og margt af því áður ókunnugt; 11. Ýmisleg kvæði og vísur, og þar í einnig margt áður ókunnugt; 12. Þýdd kvæði. Mörg af þeim hafa ekki birzt áður, t. d. fjöldi kvæða eftir sænska skáldið Fröding. Skýjafar heitir nýútkomin ljóðabók eftir Ásmund Jónsson frá Skúfstöðum. Hún er aðeins prentuð í 300 tölusettum eintökum, en út- gáfan er mjög vönduð og allur frágangur í bezta lagi. Ásmundur gaf 1922 út dálítið kvæðasafn, sem Haföldur heitir, en hann var þá ungur og ekki fullþroskaður, og bókinni var lítið sint. Þessi nýja bók tekur hinni langt fram og eru í henni mörg góð og faHeg kvæði, og öll eru þau vönduð að frágangi og vel ort. Þar eru ættjarðarkvæði, náttúru- lýsingar, ástakvæði, hvatakvæði, jólakvæði, tækifæriskvæði og minningaljóð, svo að þar er snert við flestum yrkisefnum, sem ljóð- skáld hafa fyr og síðar einkum fengis við. Bókin er 134 bls. í stóru broti, og í henni eru 44 kvæði. Höf hefur helgað hana minn- nigu föður síns. Þetta er niðurlagserindið í „Aldarminn- ing Matthíasar Jochumssonar“: Eldar vaka yfir þínu leiði. Uppheimsdísir veg þíns anda greiði. 1 minnisbjarma lýtur þjer með lotning þín ljóða-þjóð, þín móðurjörð, vor drtning. Haf þökk, haf þökk! Þú svanur Sigurhæða! Söngvahof þú reistir guðmálsfræða. Þú skáldfrægð hlauzt við skriftaborð þíns hjarta. Þú skópst oss veröld lista, háa og bjarta. Jón Stefánsson málari. Um hann hefur á þessu ári komið út á dönsku lítil en falleg bók, eftir Poul Utten- reitter, og eru í henni ljósmyndir af ýmsum málverkum Jóns Stefánssonar. Höf. segir frá upphafi og þróun málaralistarinnar hjer á landi, nefnir flesta íslenzka málara, sem orð hefur farið af, og einkenni þeirra hvers um sig. Síðan lísir hann æfi og listamannsferli Jóns Stefánssonar og fer mjög lofsamlegum orðum um verk hans. Graamand (Grámann) heitir nýútkomin skáldsaga eftir Gunnar Gunnarsson, gefin út af Gyldendals bóka- verzlun í Khöfn. Hún er viðbót við þann flokk skáldsagna hans, sem taka til með- ferðar efni úr sögu Islands, og mun vera fjórða bókin í þeim flokki. Hún segir frá lífi manna og viðburðum hjer á landi um það leyti sem ritöld hefst og koma ýmsir nafn- kunnir menn frá þeim tímum við söguna, svo sem Hafliði Másson, og er mörg frásögn um þá tekin að mestu orðrjett upp úr gömlu sögunum. En Gunnar skapar svo nýtt fólk, einkum almúgafólk, inn í söguna, og nær á þann hátt til víðtækrar lýsingar á þjóðlífi þeirra tíma, sem hann segir frá. Bókin er skemtileg og hefur fengið mikið lof í dönsk- um blöðum, er talin bezta bók Gunnars í þeim sagnaflokki, sem hún heyrir til. Jeg ser et stort skönt Land. Svo heitir nýútkomin bók eftir Guðmund Kamban, gefin út af Gyldendals bókaverzl- un í Khöfn. Þar er Eyrbyggja saga að nokkru leyti endursögð og svo allar gömlu sögurn- ar um siglingaferðir og landaleitir hjeðan vestur um haf, lýst byggingu Grænlands, fundi Vínlands og ferðum Islendinga þangað í fornöld. Er þarna sögð saga Eiríks rauða og fleiri landnámsmanna Grænlands, saga Leifs hepna og saga Þorfinns Karlsefnis, Björns Breiðvíkingakappa og margra fleiri manna, sem þátt tóku í landkönnunarferð- um hjeðan vestur um haf. I aðaldráttun- um þræðir höf. frásagnir gömlu ritanna, en eykur þó nokkru inn í, eða fyllir út eyðurn- ar, þar sem frásagnir gömlu ritanna eru ekki fullskýrar, en gefa bendingar, sem hægt er að styðjast við. Þórgunna sú, sem sagt er frá í Eyrbyggju í sambandi við Fróðárundrin, segir höf. að sje gömul kærasta Leifs hepna frá Vestureyjum og lýsir nákvæmlega kynn- ingu þeirra þar í eyjunum, er Leif hrakti þangað í ofviðri á leið frá Grænlandi til *

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.